Dónalegi drussi,
dólgur, skussi,
frethólkur og frussi
feiti hlussi!
Hlussan mín er æðislega ágæt,
svo yndislega velvaxin og fágæt.
Stöku sinnum hossast ég á henni
og hömpast þar til ei því lengur nenni.
Nenni ei að yrkja hér
orðinn frekar latur.
Nokkuð varla núna er
niðurskurður flatur.
Flatur fimmaur ekki til
fátt er nú til ráða.
Efnahaginn ekki skil
ein ég geng til náða.
,
Náða til ég núna geng
nóttin drauma tekur
Svefninn hressir dáðar dreng
dagmáls klukkan vekur.
Vekja löngun litla mér
langar æseif-tölur.
Því gæðunum sem geðjast mér
granda ryð og mölur.
Mölétin var meyja þín
mærðir hana sposkur
Ýsu tekur upp á grín
enda hertur þorskur
Er birtir brim í lóni,
og blæðir sól við hring.
Þá lifir lán í tjóni,
þetta líf er þarfaþing.
Flott vísa, Genji, og velkominn á Gestapó. Að vísu á vísan ekki heima á þessum þræði, enda er hann keðja sbr. reglur þráðarins, sem koma fram í fyrsta innleggi. Hver vísa þarf því að byrja á því orði, sem næsta vísa á undan endaði á.
Þorskar, karfar, krossfiskar og endur
krókódílar og sæhestar með rendur
eiga sammerkt eitthvað... t.a.m.
eiga þau jú flest að kunna' að synda.
Nú sé ég reyndar að þorskavísan er líka ólögleg vegna ofstuðlunar í síðustu línu. Vonandi getur höfundur þó kippt því í liðinn og þar með keðjunni.
Mölétin var meyja þín
mærðir hana sposkur
Ýsu tekur upp á grín
enda hertur þorskur
þetta var ábyggilega svona hjá honum
Sund er íþrótt engri lík
æfð af mestri natni
hana iðka hundur, tík
og hestur sem lenti í vatni.
(Sko, Blesi er með í vísu.)
Vatni heldur varla nein,
vel útblásin kona.
Þegar þín er löngu sein
þrái ég að vona.
Þakka ábendinguna Pó og almenna kurteisi þína þrátt fyrir að ég hafi greinilega ekki kynnt mér þennan þráð nógu vel áður en ég lét vaða.
Flott vísa, Genji, og velkominn á Gestapó. Að vísu á vísan ekki heima á þessum þræði, enda er hann keðja sbr. reglur þráðarins, sem koma fram í fyrsta innleggi. Hver vísa þarf því að byrja á því orði, sem næsta vísa á undan endaði á.
Þorskar, karfar, krossfiskar og endur
krókódílar og sæhestar með rendur
eiga sammerkt eitthvað... t.a.m.
eiga þau jú flest að kunna' að synda.
Nú sé ég reyndar að þorskavísan er líka ólögleg vegna ofstuðlunar í síðustu línu. Vonandi getur höfundur þó kippt því í liðinn og þar með keðjunni.
Gott Pó! Það er nauðsynlegt að taka pakkið á renninginn, annars lærum við aldrei neitt.
Vatni heldur varla nein,
vel útblásin kona.
Þegar löngu þín er sein
þrái ég að vona.
Þakka ábendinguna Pó og almenna kurteisi þína þrátt fyrir að ég hafi greinilega ekki kynnt mér þennan þráð nógu vel áður en ég lét vaða.
Í ferskeytlum, reglulegum, verður annar stuðull hverrar frumlínu að vera í þriðju kveðu.
Vona ég að verði brátt
Valhöll undir hamrinum
og almenn verði um það sátt
að íhöld dvelji á kamrinum.
Kamar stuðlar káorð við,
kenningarnar virkjum.
Höldum fast í heiðri sið -
háttum samkvæmt yrkjum.
Yrkjum háttum höfgum á
höfninglegt skal vera
Drottinn beina drösul má
drótt, í kvæðis bera. Glottir eins og fífl
Bera skaltu borðið á
býsn af súru slátri,
einnig sviðasultu frá
selju okkar kátri.
Kátur tæmi krúsir hér
og kenndur hrýn.
Að hella í mig hugnast mér
á hallóvín.
Halló! Vín nú heimta ég
og helltu glasið fullt.
Uppfartingin er hér treg,
ekki fer það dult.