Vinna, vinna, vinna.
Undirbúa obbolitla ferð um afréttinn. Veltir glasinu í hendi sér Nokkurra daga vinnuferð. Þefar af innihaldi glassins Við förum nokkrir saman með hóp af hrossum. Smakkar innihald glassins Lygnir aftur augunum og setur upp spekingssvip Mmmm, landi. Árgangur 2014. Eðalstöff.
Leita að fokkings auðkennislyklinum... Blótar herfilega og rífur hár sitt
Reyna að halda mér vakandi. dottar sitjandi
Undirbúa veturinn... nokkurnveginn.
Drekka fyrsta glas úr þriðju rauðvínsflösku kvöldsins. Það útskýrir kannski hvernig ég rataði hingað... Klórar sér í höfðinu og starir þegjandi út í loftið
Ég er að reyna að muna eftir því að vera nú almennileg. Það er bara svo andskoti erfitt. Pússar hornin.
Njóta þess að þurfa ekki að gera rassgat fram á mánudag... veit eiginlega ekki hvað ég á að gera af mér.]
Rifja upp og lesa þræði.
Láta mér leiðast. Það er svo leiðinlegt að vera veik heima.
Lesa fyrir próf... næturnar eru sennilega ekki hentugasti tíminn til þess, en næðið er skrambi gott...
Ah já, ég man þá tíð þegar desember var varið í lestur og stress.. Einhverra hluta vegna sakna ég ekki þess tíma, ég er bara vakandi af því að ég vil vera vakandi. Hengir upp glimmerkúlur og bakar stressfríar smákökur