Ég er í endurhæfingu!
Ég er að teya í mig menninguna sem og blessað ákavítið - en ekki hvað? Stekkur hæð sína
Ég er að laumupúkast Ljómar upp
Ég andvarpa í sífellu af feginleik yfir opnuninni. Og Bloodhound Gang miðunum sem ég var að vinna.
Ég er á fylleríi af því að helvítið hann Enter hefur tekið frystinn í eldhúsinu úr sambandi í öllum framkvæmdunum
og því eru 20 rollur, 8 þorskar og nokkrar rottur lifnaðar við í eldhúsinu og hleypa mér ekki inn.
Ég er að reyna að endurbyggja Kaffi Blút.
Endurhæfing, leit að Baggalútíu, jú neim it.
Ég er að leita að fornminjum frá því í vor...
Ég er að brosa út að eyrum, ásamt því að hoppa um við ljúfa tóna Innvortis.
Ég er að fara að skipa Vlad að hunskast hingað strax og auk þess að minna hann á að heimsækja Leoncie og fleira skemmtilegt.
Akkúrat í augnablikinu hljómar Kósíheit par exelans út úr viðtækinu. Mér þótti það viðeigandi að spila hátíðarmúsík í tilefni opnunarinnar. xT
Vjer erum að fagna því að hafa loks komist hingað á ný. Skál ! Sýpur á fagurbláum drykk.
Jafnframt vorum vjer rjett í þessu að gera þá uppgötvun að oss er óheimilt að rita fjelagsrit sökum of fárra innleggja Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer.
Ég er að hundskast til að skrifa á Gestapó í fyrsta sinn í rétt tæpa þrjá mánuði. Ég sé að ég var seinn til. En jæja, skál!
Ég er að ljóma af gleði yfir því að lúturinn sé búinn að opna.
[/s]Klifrar upp úr pappakassanum sem hún hefur geymt sig í undanfarna mánuði
Vjer erum að skoða þetta nýja Gestapó og setja í leiðinni stórglæsilegt Baggalútíumet í að hrökklast afturábak og hrasa við.
Það var og... hjálpar Vlad við að hrökklast afturábak og hrasa við
Fellir Ívar og Vlad
Hleypur flissandi í burtu