— GESTAPÓ —
Afhendingarkeðja
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 24, 25, 26 ... 32, 33, 34  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 8/8/15 18:10

Dofa nokkrum finn ég fyrir, fremst í nefi
sem ég í koppi hvers manns hefi.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 8/8/15 18:39

Hefist ekki hafraklattinn held ég bara
oní fjöru og fæ mér þara.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 30/9/15 20:44

Þaraláturs- þykir mönnum þarfur -fjörður.
Örna- skal þar -gangur gjörður.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 8/5/16 09:07

Gjörður var á góðu þingi grautarpottur.
Síðar var þar þveginn þvottur.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 11/11/16 13:11

Þvottavélin þvær ei lengur, þvott af yður.
Loksins störf hún lagði niður.

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 23/2/18 18:42

Niður lagðist næstum því sá netti þráður.
Þú skalt yrkja óðinn, bráður.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 27/2/18 13:37

Bráður hef ég bundið skó á báðum fótum...
... saman. Gróf í sárum ljótum.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 16/4/18 16:53

Ljótum konum leiðist mest að líta sína
spegilmynd, þá margar hrína.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 17/4/18 12:11

Hrína svín og hneggja sumir hestar þegar
lenda þeir í villum vegar.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 18/4/18 09:44

Á vegagerðaverkamenn á Víkurheiði
sótti bæði svefn og leiði.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 18/4/18 10:05

Leiðitama leiðtoga í litlum ríkjum
ætla ég við öll nú svíkjum.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 18/4/18 10:55

Svíkjum ekki sjálfa okkur. Sigmund styðjum.
Fyrir honum bænir biðjum.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 18/4/18 17:31

Biðjum við um borgarstjórn sem bognar ekki,
rífur af sér ríkishlekki.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 19/4/18 10:16

Hlekkir okkar hugarfars þeir hamla mikið;
heldur meir en hass og spikið.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 11/5/20 20:09

Spikið hristi, spikk þá verð og span að lokum.
Hætti að klæðast kjólapokum.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 12/5/20 09:30

Kjólapokum klæðast prestar kvöldin löngu.
Undirfötin eiga þröngu.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 10/4/21 21:03

Þröngu kjörin, þrælalánin, þarfir vímu.
Við þessa djöfla þreytti glímu.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 12/4/21 09:06

Glímutökin gagnast þeim sem gjarnan vilja
ganga hólm og glaðir skilja.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
        1, 2, 3 ... 24, 25, 26 ... 32, 33, 34  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: