Hvurnig lýst yður á að efna hér til kveðskapar og kveðast á að gömlum sið?
Og jeg vildi gjarna sjá bæði hér vísur dýrt kveðnar sem og´úr útsölu í Bónus verslunum.
Komdu nú að kveðast á
kappinn ef þú getur
Láttu ganga ljóðaskrá
Laust í allan vetur
Síðasta rímorð á undan var VETUR.
Vetur langur líður hjá
leggur snjó á jörðu.
Getur strangur stigið á
stráin frosnu hörðu.
Hörðu börnin leika sér
í landi snjó og ísa
vetur konungur ræður hé.r
uns dagsbirtu fer að lýsa
Ég varð að breyta orðinu h.é.r því annars kemur hier. útaf þýsku dögunum á baggalút.
Lýsa skoðun lúsin má
á ljótum flösuskalla
minna gjarnan mætti sjá
mjöllin veðst um hjalla
Hjallabrekka hún er brött
í hálku maður rennur
þessi vísa er útí hött
á báli nornin brennur
brennur enn í minni mér
meyjan barmafyllta
á réttum stöðum sýndist sver
sveina gerði tryllta
Tryllta skjótta tryppið þitt
trygga beisladýrið.
Vil ég hoppa á hnossið mitt.
hérna úti í mýri.
mýri fann hjá miðri kvon
mátti jarlinn herðast
lagði klárinn lon og don
lengi var að ferðast
Ferðast svínið sjónum á.
Síðan víni sýpur á.
Þvoðu línið lipurtá.
Lögg á trýn´ ei hellast má.
Ferðast Numi Fannsker víða
feitlaginn og ljótur "sehr".
Fær sér oftlega tvo bjóra
og þýðir þýska orðið hier.
hér nú fer ég fleipur með
fimur raupa dellu
getur margt þá skondið skeð
sko nú barbabrellu
Barbabrellu gerði greitt
gekk þar allt í sögu.
Járnið skaltu herða heitt
hér í amors bögu.
bögur má í brellinn spá
best að ljá þeim eyra
aðrar skrá á skjáinn má
skal þær bráðum heyra
Heyra má ég Barba ljóð
man ég er hann orti
Batt í stuðla, styrkti óð,
stöku gerð´ í sporti.
Sporti gulu stóð ég´ í
vætti enni og kinnar
sýp og baða mig í því
æðisbunu ástar minnar
minnar stöku velja vil
vænlegasta efni
sprund og veigar tel því til
tópak einnig nefni
Nefni aukinheldur hass
heróín og sprautur
Góður er einnig bjór vom fass
furðulega blautur.
Blautur er ég allur orðinn
eins og ég vill hafa
líkaminn er orðinn sorðinn
af gullbrunninum hans afa