Hjálpi mér! Það liggur við að ég sjái eftir því að hafa skráð mig inn. Kannski hefði verið betra að halda bara áfram að lesa Gestapó anonymoust?
Það held ég líka. Ef að þær baðmullar móttökur sem þú hefur fengið hér skjóta þér skelk í bringu skaltu bara vera heima og ekki hreyfa þig undan dúnsænginni.
Neinei.... ég get alveg þolað þetta, held ég. Enda hef ég lesið þó nokkuð af því sem fer hér fram og hefði þá hrökklast í burtu miklu fyrr ef þetta væri mér ekki að skapi.
Mér sýnist þú bara hafa sloppið bísna vel hingað til, en það er sennilega samt bara af því að þú ert kvenkyns...
Jah, þú heldur það. Eins gott að ég valdi enga af þessum karlkyns myndum úr myndasafninu!
Svo verður líka svo gaman þegar ég er komin með andlit. Er ekki hægt að pikka aðeins í þennan Enter svo ég fái myndina mína STRAX?
Ertu búin að senda hana? Ef svo er, verður þú örugglega komin með hana á morgun.
Á morgun? Á MORGUN???
Ég get ekki beðið svo lengi! Það er heil eilífð þangað til á morgun! Brestur í óstöðvandi grát
Svona óþolinmæði dugar skammt ef þú ætlar að lifa af dvöl þína hér.
Hengir nokkrar sleðabjöllur á Amelíu fyrst hún er svona dugleg að hoppa
Setur hreindýrshorn á Amelíu
nær í feld og rautt trúðsnef og skellir á Amelíu jæja og svo hotthott
Nei nú segi ég stopp!
Ég skal hins vegar fara í jólameyjarbúning, með stuttu pilsi og öllu tilheyrandi.
sest niður og bíður Jæja, koma svo! bíður spenntur
Sest hjá Ívari, réttir honum stórann bjór og veifar fimmhundruðkallabúnti
Jæja, byrja svo. Verður æstur
Hoppar af kæti
MEIRA MEIRA MEIRA !!!
Býður dömunni drykkxT