Á gamla þræðinum kom fram ósk um að fá mottóið á latínu, hér er mín tillaga að þýðingu, með þeim fyrirvara þó, að ég hef ekki hugmynd um hvernig kóbalt er á latínu. Ákavíti færi ég líka í hið upprunalega horf, vera má að betur fari að þýða frekar íslenskuna: Auki inferus eða eitthvað í þá áttina.
En, án frekari formála:
Cobalt Animi Aqua vitalis est.
Það mætti breyta bláa litnum í krossinum í kóbaltbláan hann er soldið skær finnst mér.
Það er víst Cobaltum.
Aqua vitalis Cobaltum Animi est.
Svo er bara spurningin hvaða orðaröð er fegurst, það er nokkuð frjálst í latínunni.
Svo má líka fylgja karólínsku hefðinni og sleppa hástöfum:
cobaltum est aqua vitalis animi.
Já, eða rómversku hefðinni og hafa bara hástafi:
COBALTUM EST AQUA VITALIS ANIMI
Hér er einn útpældur:
Efsti græni liturinn táknar Gestapóanna og sýnir það að gestapóar eru toppurinn á tilverunni og ef maður er ekki gestapói er maður ekkert, sem skýrir síðan rauða flötinn; hann táknar blóð, sem táknar eymd og volæði= þeir sem eru utan Baggalúts (og Undirheimar væntanlega).
Baggalútsmerkið er síðan haft hjá kóbaltinu sem er undirstaða Baggalútíu. Merkið er einnig haft á grunni píramídans til þess að tákna það að Baggalútur sé undirstaða alheimsins.
Mér lýst að vísu líka vel á fánann sem Vamban gerði en þessi er svolítið einfaldari.
Þennan fána má svo útfæra og bæta,síðan ég er líka kominn á þá skoðun að það sé ekki góð hugmynd að hafa kúrekahatt á fánanum, það má fara á skjaldarmerkið (hvað er annars skjaldarmerkið?).
Mér finnst Davíðsblár líka frekar smekklegur.
Það ætti að taka allir myndirnar af gestapóum og búa til mósaíkmynd úr þeim. Myndin ætti að vera af logo-inu á skreyttum fleti. Svo ætti hann að vera svona þrívíddarmynd sem stekkur á mann ef maður glápir úr fókus á hana.
Þá væri líka pottþétt ekki hægt að falsa ekta fána. Ég meina, hver getur afritað krúttið hann bauv??
Það er dálítið mikið vesen að gera þannig fána, þá þyrfti líka alltaf að vera að stækka hann.
En á ég þá bara að setja fána Vambans inná síðunna? (Hef reyndar ekki fundið út hvernig maður setur myndir þarna inn ennþá Glottir eins og fífl)
Úr því forsetinn vill fána Vambans, viljum vér fána Vambans.
Það má líka ganga lengra í þessu frímerkjasafni og seðlasafni. T.d. frímerki af öllum ráðherrum og embættismönnum. Ljómar upp
Það var einusinni til ágætis seðill með mynd af mér...
Fær nostalgíukast