Þetta eru allt saman fínustu frímerki hjá ykkur en eigum við ekki að reyna að halda okkur við fánanna, í þessari umræðu að minnsta kosti.
Líst vel á þetta Ívar, var bara ekki kominn lengra í að gera frímerkjasafnið.
En af hverju ekki kringlóttan fána?
Jaa, það er hugmynd sem væri hægt að útfæra. Ég skal prófa að gera eitt stykki svoleiðis.
Strax betra
Er einnig að vinna í nokkuð sérstæðum kringlóttum fána, kemur vonandi innan skamms.
Skellir sér aftur lö'ursveittur fyrir framan Adobe Myndaverslunina og heldur vinnunni áfram
Til minnis, Enter er ekki ráðherra, í stað hans væri mun betra að skella mynd af mér.
Eins og ég sagði Goggur minn góður "Hluta af ráðherra flórunni í aðalhlutverki" en fannst nauðsynlegt að hafa Enter með í fánanum.
En ég get svo sem gert einn sérstaklega fyrir þig með mynd af þér í fánanum.
Ég er nú einn mikilvægasti ráðherra ríkisstjórnarinnar og mér finnst að ég ætti að fá að vera með í þessum fána! Óþarfi að hafa einhverja óvirka á borð við Ruglubulla!
Það er ástæðan kæri Ívar fyrir því að þetta heitir frumdrög, til að fá að vita hvurju væri best að breyta, ég skal breyta þessu á morgun
Þá legg ég til að Enter fái sæti innar í hringnum, hann er jú ... okkur æðri.
Hjer eru margar stórskemmtilegar tillögur er gaman væri að nota við hin ýmsu tækifæri. Þess ber þó að geta að fyrir um ári hannaði Vamban hinn fullkomna fána Baggalútíu. Leit að honum stendur yfir (þ.e. fánanum).
Hvernig væri að nota negatívuna af íslenska fánanum. Það væri gaman að skoða það.