Í tilefni af því að það er loksins verið að kynna Baggalútíu fyrir umheiminum (http://uncyclopedia.org/wiki/Baggal%C3%BAt%C3%ADa) set ég á fót samkeppni um fána Baggalútíu. Hinn upphaflegi fáni virðist nefnilega hafa týnst og ef hann finnst ekki verður einfaldlega að hanna nýjan, en með því að setja hann inn á þessa síðu er það tryggt að hann týnist ekki aftur.
Á öðrum þræði um svipað málefni komu fram þessar hugmyndir:
Ég er sammála því að sú neðri er betri en hin, en ég er á því að fáninn verði að minnsta kosti að vera með Baggalútsmerkið.
Sá efri er kóbaltknúinn og var bara hugmynd gerð í smá tilraun til að fá hugflæði annarra af stað. En sá guli og blái er nær endanlegu útgáfunni.
,,Í tilefni af því að það er loksins verið að kynna Baggalútíu fyrir umheiminum (http://uncyclopedia.org/wiki/Baggal%C3%BAt%C3%ADa)[/g]
ég er mjög ánægður á vera á þessari heimasíðu!
Var það ekki Enter sem gerði einhvertíman fána? Ég finn hann hvergi...
Þyrfti ekki að vera kúrekahattur yfir merkinu? Svona eins og kóróna.
undirritaður mun nú leggjast undir feld og vinna í málinu, tillögur mínar verða lagðar fram skömmu síðar.
Þökkum kærlega fyrir það, en ef fólk vill sjá einhverjar sérstakar útfærslur eða liti endilega segiði til, ég hef ekkert betra að gera hvort eð er Ljómar upp
Reyndar er einn galli við þessa mynd skjöldurinn sem hið flotta merki Baggaluts er á er í sama lit og bakrunnurinn, væri kannski hægt að breyta litnum á skildinum.Starir þegjandi út í loftið
Sjáið þessa mynd: http://upload.wikimedia.org/wikipedia/de/3/3c/Byzantium.jpg
Þarna er örn hins heilaga rómverska ríkis þýskrar þjóðar (ca. 1356-1806). Takið eftir kórónunni yfir erninum, baggalútíski fáninn þarf kúrekahatt sem þjónar sama tilgangi!
ef ég á að segja mitt álit, þá finnst mér blái liturinn ekki nógu áberandi, annars mjög skemmtileg lita samsetning.Stekkur smæð sína
Hérna er síðan einn fáni með kross: