Sælinú!
Ég fór í skilaboðaskjóðuna og las m.a. Sláið einfaldlega inn notendanafn.
Þaðheitir ekki notendi, heldur notandi. Þarna ætti því að standa: Sláið einfaldlega inn notandanafn,og hana nú.[/i]
Þetta er augljóslega skemmdarverk frá óvinum vorum Sendir kjarnorkuregn yfir Færeyjar í stórskemmtilegu reiðiskasti
Íslenskukennarar vilja nú meina að notandi beygist eins og nemandi, þ.e. að bæði sé rétt að segja notanda og notenda í fleirtölu.
En ef aðeins er beðið um eitt notandanafn en ekki mörg þá er þetta náttúrulega alveg bandsjóðandi vitlaust
Við erum að ræða um eintöluna í þolfalli, þágufalli og eignarfalli og hún er notanda og ekkert annað.
notum andartakið til að anda á öndina á notalegan hátt.