Hér skal yrkja Dverghendur..!..
.
Sjá Dverghenda:
.
.
Dveghendum hér dæmalausum
dælum inn
Allir saman mikið mausum
mælum hinn
.
Hinn ef ekki hefur kjarkinn
hott'á má
virkja skulum vísnaþjarkinn
vott af þrá
sjá nánar hér http://www.heimskringla.net/bragur/Dverghenda.php
og hér http://rimur.is/?i=22
Þrái ég að þrum í rassa
þrusufast
fái ekki flöskukassa
fæ ég kast
Köst á hendi, kvæð´inn sendi
kært er mér
Löst á bendi, læð'inn endi
lært er hér
Hérna dvergum henda munum
hátt á loft
stöðugt rím í stuttum runum
stuðlum oft.
Oft er gaman yrkjum saman
aldinn merg
eflum framan æfum taman
óða-dverg
Dverghendunni kátur kasta
komum hér
þyljum keðju þúsund rasta
þrjótager
[Alveg ertu til fyrirmyndar Heiðglirnir]
Gera mikið gott og betur
glaða slóð
vera strikið vott er letur
vaða ljóð
.
.
[Þakka þér Barbapabbi minn]
Ljóðum dátt í dverga hendi
dæli á þá
sjóða drátt á vergang vendi
væla má
Má ég ekki míg' í stólinn,
mamma mín?
Ata matnum yfir kjólinn,
upp á grín.
Hóstar
Grín er það að gluða "emm-um"
galið, villt.
Blóðugt er í trönsum, tremmum,
tryllt og spillt.
Spilt er valdið sparisjóða
spælt er egg
geng ég inn og garga, hljóða
gott er hnegg.
Hneggja, það er hesta málið
hrínið svín
eggja í blað fer besta stálið
brýnið fín
efins er ég um það væni
dvergskastssóði
en þeir enda senn sem spæni
hraðferðsfróði.
Vont er að Dvergurinn skuli ekki hafa þennan þráð fyrr litið
Fróði Ari forðum vísast
fræðin nam
Vart þó margt um vildi hnýsast
Víetnam
Víet nam á brottu brúða
brjóstahöld
Greiða urðu´ á larðinn lúða
lausnargjöld
Lausnargjaldið glaður, keikur,
greiða vil.
Þannig gengur þessi leikur
þangað til...
Til ég var og tók því drenginn.
Tillinn knár,
visinn mjög og verri' en enginn.
Vesæll, smár.
Smári heitir smellinn piltur
smávaxinn.
Allan daginn er hann stilltur,
út & inn.
Innviðið er úldið stundum,
illa meyrt.
Sjóleið fer að Sjálands grundum,
sjaldan keyrt.