"Já, þú ert ekki óvitlaus." er einnig mjög gott. Alls ekki allir sem fatta að það var verið að gera grín að þeim.
"Það vantar nú nokkrar blaðsíður í þig....... og efnisyfirlitið líka"
"Það vantar nú nokkrar blaðsíður í þig....... og efnisyfirlitið líka"
Nema hann sé hin rómaða bók Sverris Stormskers - Kötturinn í sekknum Glottir eins og fífl
Svo gleyma menn orðum eins og:
Gráni
Bjálfi
Stauli
Framsóknarmaður
Kommi
Káerringur
Uppáhaldið mitt er að kalla einhvern skaufaskott.
Þar sem ég veit að hér lumar á mörgum pervertum, þá skal ég bæta við að þetta er gamalt orð yfir ref.
Það má kalla fólk
Kálhaus
Þorskhaus
Jólasvein
Að ógleymdu hinu mjög svo spaka orði TUSSUSNÚÐUR
Ég sá orðið "froðuskunkur" notað í skrípó á baksíðu Baggalúts.
Klórar sér í höfðinu
Sammála, virkjum orðin "Asni, Hálfviti og svoleiðis kjarnyrt blótsyrði.[/s]
Þetta eru ekki blótsyrði! Ljót orð og niðurlægjandi, en ekki blótsyrði! Blótar herfilega með almennilegum blótsyrðum og rífur hár sitt þar til skallablettir birtast
Annars heyrði ég einhvern tíma ágæta sögu af því hvernig Halldór heitinn Laxness móðgaði Thor Vilhjálmsson. Þá hafði Thor setið lengi í heimsókn hjá Halldóri og talað svo mikið að nóbelskáldið komst ekki að. Þegar líða tók á daginn og Halldóri þótti ljóst að Thor væri kannski ekki á förum á næstunni, greip hann tækifærið þegar Thor sagði: „Þetta er ansi fallegur græðlingur hjá þér þarna fyrir utan gluggann.“
Og Halldór svaraði að bragði: „Já ég vona að hann verði orðinn stórt og mikið tré þegar þú kemur næst.“
Flissar vandræðalega
........................ég skil ekki?
Mér finnst nú samt magnaðast að það sé verið að agnúast út í orðnotkun unga fólksins hér, á þræði sem ber í titli sínum tilvísun í að hér sé rætt um nýyrði. Hér sé ég engin nýyrði, þvert á móti sé ég því eldri orð eftir því sem ég les lengra á þræðinum. Unga fólkið er greinilega ekki eitt um að misskilja merkingu orða og beita þeim rangt. (Enda átti ég svosem ekki von á því.)
Skildi ég titilinn sem svo að hér ætti að ræða um þau orð sem unga fólkið hefur fundið uppá. Undarlegt mál í flesta staði.
-
Neinei Limbri kær, þessi þráður byrjaði einmitt þannig, en breyttist svo í samkeppni um að koma með sjalgæf og frekar gömul skammarorð.
Neinei Limbri kær, þessi þráður byrjaði einmitt þannig, en breyttist svo í samkeppni um að koma með sjalgæf og frekar gömul skammarorð.
Nú les ég fyrsta innleggið yfir og ég sé engin nýyrði þar heldur...
Yppir öxlum og tekur í nefið
-
Mér finnst nú samt magnaðast að það sé verið að agnúast út í orðnotkun unga fólksins hér, á þræði sem ber í titli sínum tilvísun í að hér sé rætt um nýyrði. Hér sé ég engin nýyrði, þvert á móti sé ég því eldri orð eftir því sem ég les lengra á þræðinum. Unga fólkið er greinilega ekki eitt um að misskilja merkingu orða og beita þeim rangt. (Enda átti ég svosem ekki von á því.)
Skildi ég titilinn sem svo að hér ætti að ræða um þau orð sem unga fólkið hefur fundið uppá. Undarlegt mál í flesta staði.
-
Ég reyndi a.m.k.! Mongóma, holheftur og þroskalíti!
Ég reyndi a.m.k.! Mongóma, holheftur og þroskalíti!
Mikið rétt. En ég kannski kom því ekki nógu skýrt frá mér að það sem undraði mig var að engin voru hér "nýyrði unga fólksins". Með áherslu jafnt á "nýyrði" sem og "unga fólksins".
Þín nýyrði voru afar fín sem slík. En mér fannst þau meira vera tilbúin á staðnum og sá ég ekki fyrir mér að þau væru í notkun hjá unga fólkinu.
Annars er til þráður um blóts- og skammaryrði. Og sá er afbragðsgóður. Þið hefðuð jafnvel gaman af honum, tel ég.
-