— GESTAPÓ —
Bændaspeki
» Gestapó   » Kveðist á
     1, 2, 3 ... 42, 43, 44  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 17/10/05 14:56

Þessi þráður er stæling á Bauernregeln. Ein slík er t.d. svona:

Hat der Bauer Eine Latte
muss die Bäuerin auf die Matte.

En, hér skal stuðla rétt en bragliðafjöldi vera frjáls og rím er endarím.

Bylji regn á bóndans hári
búast má við hörðu ári.

Þarna er höfuðstafur í seinni línunni, en eins má hafa hana sér um stuðla:

Fari núna frost að herða
Baugsmenn dæmdir bráðum verða.

Hér koma bændur ekki við sögu og er það sjálfsagt. En best að byrja:

Æli bóndinn yfir diskinn
eldað hefur konan fiskinn.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Ira Murks 17/10/05 15:12

Ef að bölvar bóndalurkur
brugðist hefur sumarsþurkur.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 17/10/05 15:13

Skemmtilegur þráður.

Ef í kvöld verð ekki „heppinn“
ekki nóg þá verið keppinn.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Ira Murks 17/10/05 15:17

Þegar bónda þornar kútur
þenur sig sem geldur hrútur

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Ira Murks 17/10/05 15:19

Fjallabóndi fer á tinda
finni hann ekki leifar kinda.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 17/10/05 15:39

Vilji bóndinn „bara kósí“
hefur ástmey fundið fjósi í.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 17/10/05 15:43

Eigi bóndinn engan maka
ærnar verður hann að taka.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 17/10/05 15:45

Sjáist Ford í Fischersundi
fellur krónan gagnvart pundi.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 17/10/05 16:09

Mígi tík á tóft úr suðri,
tryggt er él úr norðri puðri

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 17/10/05 16:27

Stígi maður í meters tað
máttu vita að þarf í bað.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 17/10/05 16:47

Þegar jarmar kollótt kind
krakkinn hlær og leysir vind.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 17/10/05 16:55

Það má nota aðra bragarhætti í sjálfu sér, en tvær línur takk. Afhending er kjörin. Hún er eins og braghenda, nema, af er ein hending.

Sjáist undir kvenna kjólum kuntur loðnar,
bóndinn hlær en rakkinn roðnar.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 17/10/05 17:21

Þegar jarmar hyrndur hrútur
heiðagæsin fer í mútur.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 17/10/05 20:01

Bili inni brugðin hosa
brestur á með vestanrosa

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 17/10/05 23:16

Skíti bóndinn beint í vaskinn
bólgna hnén og vinstri rasskinn.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 18/10/05 00:36

Ef menn þráðinn yfir drulla,
ættu þeir að hætt'að bulla.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 18/10/05 00:43

Ef að brauð í formi fellur
fyrr en varir hríð á skellur

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 18/10/05 00:45

Þegar hangir hor úr nösum
hækkar verð á fjallagrösum.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
     1, 2, 3 ... 42, 43, 44  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: