En að kalla bara fólk með nöfnum?
Það var auðvelt í gamla daga, þegar við vorum innan við fimmtíu skráð, en ég nenni ekki að telja alla upp þegar ég vil ávarpa alla í heild... sérðu fyrir þér setningu eins og þessa:
Kæri
-----
langur listi
----
þú ert boðinn á fyllerí í kvöld... Skabbi... gleymdi nokkrum held ég bara... hehe..
Kæri Skabbi, þú gleymdir mér, ég er sármóðgaður. Brestur í óstöðvandi grát
Bagglýtingur eða Gestapói, jú ég hallast frekar að því að ég sé Bagglýtingur enda á ég sæti í ríkisstjórn Baggalútíu auk þess að gegna fleiri embættum.
Þú hafðir þá ekkert mætt þann daginn, tók bara listan sem birtist á heimavarnarliðssvæðinu... ég hefði alldrei gleymt þér Herbjörn minn...
Æ, æ, þetta hefur þá verið daginn, sem ég lá í þynnkunni og komst ekkert í tölvuna. Það hlaut að vera einhver skýring. SKÁL! xT
Hvað er þetta pó á eftir Gesta-? Við erum að vísu gestir vefsvæðisins Baggalútur en ég hef aldrei skilið þetta -pó dæmi. Hef að vísu innst inni vonað að póið hafi einhverja leynda skírskotun sem ég í minni takmörkuðu visku hef ekki getað komið auga á. En sé ekki bara leikur með orðið GESTAPO sem seint mun draga sér jákvæða merkingu. Hvað er ég að röfla þetta sigldi ekki óskabarn ónefndrar þjóðar undir merkjum hakakrosssins í gegn um súrt og sætt þar til nýlega. Bara af því þeir voru á undan.
Nafni Bagglýtingi
Vjer minnumst þess að eitt sinn var ónefndur Bagglýtingur með vangaveltur um hvort Gestapó væri borið fram Gesta-pó eða Gest-apó. Vjer vorum/erum vanir hinu fyrrnefnda þannig að vangaveltur þessar komu oss mjög á óvart á sínum tíma en eftir á að hyggja er þetta eigi órökrjett sökum þess hve ritstjórn hefur stundum gaman af að kalla aðra (sjer í lagi gestina hjer) apa.
Þetta kannski skýrir líka mynda framboð það er nýliðum stendur (stóð allavega) til boða. Erum við ekkert meira en gest-apakettir í augum ritstjórnar baggalúts.
Plís...... djöfulsins moð og kjaftæði. Hafiði virkilega ekkert merkilegra við að fást en þetta.
Heyrið oss Rindill, svo er nú komið að hafi maður nokkuð merkara að gera en stunda Gestapó af krafti, eins og sönnum Bagglýtingi sæmir, hefir hann eigi kynnst Baggalúti. Þar af leiðir að vér getum séð að þér hafið eigi komið oft hingað og ættuð því eigi að tjá yður um málið.