http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1160852 Hvernig getur þetta staðist? Veit að alltaf er hægt að rökræða um þetta og fólk hefur mismunandi skoðanir. Þannig séð ekkert að fyrsta sætinu þó ég sé ekki sammála því, en annað sætið. Hvernig getur þetta staðist? Hvernig getur þetta staðist? Voru 500.000 þeirra sem tóku þátt 10 ára stelpur?
Mér er illt.
Gapir undrandi á skjáinn We are the champions í fyrsta sæti!?! Og Brittní bara í öðru oj hvað þetta er ósanngjarn heimur Brestur í óstöðvandi grát
Jáhá sérstakur listi....
1. „We Are The Champions“ – Queen
2. „Toxic“ - Britney Spears
3. „Billie Jean“ - Michael Jackson
4. „Hotel California“ - The Eagles
5. „La Tortura“ – Shakira
6. „Smells Like Teen Spirit“ – Nirvana
7. „Yesterday“ - The Beatles
8. „One“ - U2
9. „Imagine“ - John Lennon
10. „Sultans of Swing“ - Dire Straits
Þetta er eitt af þessum táknum... heimurinn er að farast... næst fæðist þríhöfða kálfur og svo fljúga gæsir aftur á bak...
Ég vildi óska að Britney Spears væri þríhöfða kálfur. Þeir gera ekki plötusamninga.
Fær martröð um þríhöfða Britney, sem raddar sjálfa sig. burrrrrrrrrrrr
Ég hafði ekki hugsað út í það.
Hryllir sig
Jah ef þetta væri kosning á íslandi þá væri lagið í fyrsta sæti, allar stelpur jafnvel niðrí 8 ára eiga síma og þá meina ég allllllaaaaarrrrrr!!!!!
Mér fannst myndbandið við Toxic doldið flott. Ekki var lagið heldur eitthvað slæmt. En kannski ekki besta lag í heimi. Mér finnst We Are The Champions ekki einhver snilld heldur. En ég er náttla bara lítill bangsi...
Nei, nei, Britney Spears er ekkert svo slæm.
HÚN ER HOLDGERVINGUR ÖMURLEIKANS!
Ofandar af geðshræringu
Ég skal fullvissa ykur að það er það næsta sem kemst helvíti. Ég hef upplifað bæði!
Það stingur í augun að það er ekkert lag af nýju geislaplötu baggalúts á listanum þrátt fyrir afar vandaðan disk!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Hvernig má það vera? Uss! Að heyra þetta! Heiðingjar!
Það er augljóst að þetta er gömul frjett. Listinn hefur orðið til áður en Baggalútsdiskurinn kom út. Sömuleiðis er augljóst að úrtak það er notað var hefur verið ómarktækt.
Ég man þá gömlu góðu tíma þegar apaöskur og annað því líkt var enn við líði. Starir þegjandi út í loftið og hugsar fallegar hugsanir
Ég hefði nú viljað sjá "Söng villiandarinnar" á þessum lista.
Það hlýtur að vera ljóst að svona listi er ekki marktækur nema lög yngri en 3-5 ára séu útilokuð, það getur tekið þann tíma að losna við óhroðann sem glymur í eyrunum alla daga.
Verði gerð svona könnun eftir ár er nokkuð ljóst að þar verður engin Britney.
Og sá sem velur We Are the Champions með Queen, hefur sannarlega aldrei hlustað á Queen.
Æ, bölvaður pirringur er þetta.