Leikurinn YATZY TENINGASPIL -!- CASINO ROYALE hefur verið færður á hitt leikjasvæðið
Leikir sem verða færðir fljótlega ef þeir lifna ekki almennilega við:
Ásar vinna
Leikjasafn Ég sjálfur; Sex eins
Glefsur úr dægurlagatextum, lag og flytjendur ?
Hvaða gestapóa dettur þér í hug?
Nýyrðasamkeppni Schultzs
Poppkomma Vamban
Frjáls leikur Ívars: Hvað er klukkan?
Þeir sem hafa eitthvað við þetta að athuga vinsamlegast sendið mér einkapóst.
Það er kannski ráð að færa Hvaða Gestapóa dettur þér í hug... Hann hefur ekki hreyfst síðan í nóvember!
Svo kæmi oss eigi á óvart að sumir leikjanna væru til tvöfaldir, annaðhvort þannig að þeir sjeu bæði hjer og á hinu leikjasvæðinu eða þá að þeir sjeu báðir á sama leikjasvæðinu. Gefur það e.t.v. tilefni til að loka einhverjum þráðum.
Ég legg til að við notum frekar tímann til að endurvekja gamla þræði
(og svo leggur næsti maður til einhverjar aðrar úrbætur og þannig koll af kolli þangað til þetta verður orðið lygilega vinsælt)
Hreinsunaraðgerðir. Er það hér sem fólk fer í Detox?
Vér leggjum til, að hreinsað verði til á leikjasvæðinu á þann hátt, að aðeins verði ein síða lygilega vinsælla leikja.