Óska eftir vel smurðum píanófingrum fyrir lítinn pening.
Óska eftir hæfileikanum að skilja kvennfólk.
Hlýtt og gott teppi óskast - mér er ískalt.
Hvítur hestur til sölu vegna plássleysis. Hnakktaska, skjöldur og lensa geta fylgt með.
Bílskúrssala
Allt á að seljast. Hurðir, gluggar, veggir, einangrun og þak!
Missir allt klink úr vösum vegna hláturs yfir innleggjum Önnu Pönnu á þræði þessum
-
Anna Panna hvað ertu að gera mér, maður á sér vart viðreisnar von eftir svona Út-reið. Deyr úr hlátri, hahahhahahahahahah lifnar við og deyr aftur úr hlátri hahahhahhahhaahhahahahah......!.......
Riddari í skrítnu ástandi fæst fyrir lítið.
Lýsing, Liggur skringilega í gólfinu með bros útað eyrum og hreyfiist ekki.
Laumast burt af þessum þræði
Mjög stórt grill fæst fyrir slikk. Mikið notað, en í góðu lagi. Hafið samband við Frelsishetjuna.
Ég óska hér með eftir líflegum umræðum á gestapó, í skiptum fyrir það læt ég lokk úr skeggi mínu.
Sæmi
Málpípa óskast. Þarf að vera lítið notuð og endingargóð. Á sama stað fást plastpokar fyrir lítið séu þeir sóttir
Vantar kassa af jólasmákökum og kakói fyrir veitingastand í jólaskreytingu. Helst nýbakaðar kökur.
Óskast til kaups.
Gulrótarsekkur óskast til kaups.
Tilboðum skal skilað til afgreiðslu merkt "gulrót2005"
Eitt (1) hægra eyra í skiptum fyrir listræna hæfileika.
Umsóknir berist bréfleiðis, merktar "crimson red"
Til sölu eru miðar á rassærismaraþon Hákólabíós 2005. Myndagláp með Hæg skúl droppátinu Knúti Jenssyni Torrínó er þema kvöldsins.
Lítið notuð samviska fæst í skiptum fyrir snefil af siðferðiskennd.