Af gefnu tilefni er til sölu húðstrjúktur api, svarar gælunafninu Sæmi.
Áhugasömum er bent á að leita sér hjálpar.
Sæmi
Rafeindaheili óskast fyrir lítið, má vera bilaður
Tveir hamstrar fást gefins. Dansa merengue eftir skipun. Vel tenntir.
Á sama stað fást handjárn - lykla vantar.
[b]Skinnsokkar til sölu.[/b]
Lítið notaðir, krossmerktir sokkar til að bægja burtu ára og íhaldsmenn.
Sæmi
Barnapíur, barnapíur.
Óska eftir að barna píur
Ofurmenni
Óska eftir 1968 árgerð af Ford Mustang í skiptum fyrir lítið notaða dós af skósvertu. ATH. Grænir demparar skilyrði.
Óska eftir 1968 árgerð af Ford Mustang í skiptum fyrir lítið notaða dós af skósvertu. ATH. Grænir demparar skilyrði.
Tekur boðinu Alltaf langað í svona fallega dós.
Tímavél óskast fyrir lítið. Þarf aðeins að koma mér 13 klst aftur í tímann.
Óska eftir nýjum blöndunartækjum í eldhús, í skiptum fyrir gömul, mikið notuð, með ónýta pakkningu. Mögulegt að láta Dumlekaramellu fylgja með í býttin.
Áttu hljómborð með MIDI tengi? Þarftu að losna við það? Þá máttu alveg gefa mér það. Ég ætla nefnilega að vera með jólalag í ár líka...
Á dósin að vera lítið notuð eða á skósvertan að vera lítið notuið?
Vantar pott og könnu, borga vel fyrir rétt eintök.
Anna Panna.
Lítið notaður örvamælir fæst í skiptum fyrir búnt af örvum. Þurfa helst að vera einhvern veginn innpakkaðar eða í bakpoka.
Gunnar H.
Lítið notaður örvamælir fæst í skiptum fyrir búnt af örvum. Þurfa helst að vera einhvern veginn innpakkaðar eða í bakpoka.
Gunnar H.
Hefði ekki verið nær að auglýsa eftir síðhærðri góðhjartaðri konu sem gæti gefið þér lokk úr hári sínu að nota í bogastreing sem hefur lélegt minni og eingan áhuga á gömlum kynnhestum?
Nei, ég á boga og streng sko, vantar bara örvarnar.
Er eitthvað gagn fyrir þig af örvunum fjórum sem eru hér á síðunni, tvær efst og tvær neðst?
Geturu notað Grýtu?
Prófar Grýtuna Anna, panna, grýta og kanna... Hmmm, ekki alveg nógu góð stuðlun í þessu sko!