Þessi þráður er hagyrðingamót þar sem menn leggja til eina línu hver þannig að úr verði samhenda sem inniheldur fjórar fullyrðingar, eina í hverri línu. Dæmi:.
Oft er fé á bankabók.
Byskup drepur stundum hrók.
Sárum þorsta svalar kók.
Sóðaleg er dauðs manns brók.
Yrkjum svo rétt og sendum ekki tvisvar í röð eða fleiri en eina línu. Þó má senda tvisvar í röð ef miðnætti erámilli sendinganna. Ég skal byrja.
Prýðir flesta fugla stél.
Prýðir flesta fugla stél.
Fordinn minn er léleg vél.
Sumir heita Samúel.
Prýðir flesta fugla stél.
Fordinn minn er léleg vél.
Sumir heita Samúel.
Sem ríma má við Daniel.
Sannlega er sólin heit.
Sannlega er sólin heit.
Séð menn hafa kind á beit.
Samúel og Daníel. Þarna rímaði nú el við el og síðasta lína var ekki sjálfstæð fullyrðing. En, við erum rétt að byrja. En ég hefði sagt: Soðning góð er hörpuskel.
Sannlega er sólin heit.
Séð menn hafa kind á beit.
Svakalega er Sigga feit.
Sannlega er sólin heit.
Séð menn hafa kind á beit.
Svakalega er Sigga feit.
Sigurbjörg er undirleit.
Gott er skvísu að gæla við.
Glotta aldrei étin svið.
Gott er skvísu að gæla við.
Glotta aldrei étin svið.
Sumir hafa kúptan kvið.
Gott er skvísu að gæla við.
Glotta aldrei étin svið.
Sumir hafa kúptan kvið.
Kratar eru hlálegt lið.
Ísinn þunnur þekur allt
þræll minn heitir Gunnar.
Nei þarf þetta að vera runhent, afsakið.
Ísinn þunnur þekur allt
þekkja Frakkar ekki malt
Ísinn þunnur þekur allt
þekkja Frakkar ekki malt
Atlantshaf er ansi salt
Ísinn þunnur þekur allt
þekkja Frakkar ekki malt
Atlantshaf er ansi salt
nú er flest í búðum falt.
Himininn er heiður nú
er nú flest í búðum falt. Svo vildi skáldið kveðið hafa.
Himininn er heiður nú.
Heiminn sigrar Ásatrú.