Það eru mandarínur í matinn hjá mér.
Hvað borðar meðal-íslendingurinn margar mandarínur í desember?
Á meðal fjölskuldu myndi ég halda að það væri u.þ.b einn kassi á dag, það gera cirka 10 mandarínur sinnum 30 dagar í desember samasem 300 mandarínur á mann, plúsmínus akkúrat tvær í óvissu.
Hjá mér eru mandarínur og samloka í matinn.
Ég meina auðvitað bara 30 mandarínudagar í desember, hinn daginn borða menn skötu.
Nú hangiket auðvitað. Með fagurlega útskornu laufabrauði, sætum og ósætum kartöflum, rófum íslensku smjöri og sérlöguðu jólaöli. Nú og á eftir er alvöru ris a la mandl (ekki þessi ósoðnu long grain sem veitingastaðir keppast við að halda fram að sé alvöru stöff) og útá alvöru heimalöguð heit karamellusósa og endalaus íslenskur rjómi.... og ein mandla.
Verði okkur að góðu - eftir messu!
Skálar við sjálfan sig