Nóa nammi hendist framm
nú sem prammi þungur
þó ég þrammi af mér gramm
þegir Sammi pungur
Pungur minn er mjúkr sem kinn
mjór í vinnustandi
hefur þynnuþráð í skinn
þjónar stinnum gandi.
(þynnuþráður mun vera sáðrásin)
Gandi votum væti í
velti hrotu kvendi
allt í gotum endar því
ástar skotum hendi
Vonandi er jeg að ná tökum á þessu.
Gandi votum væti í
velti hrotu kvendi
allt í gotum endar því
ástar skotum hendi
Vonandi er jeg að ná tökum á þessu.
Vantaði smávegis upp á til að þetta væri oddhent (var þó hringhent)... ég skal laga...
Gandi votum væta tot
velti hrotu kvendi
allt í gotum enda lot
ástar skotum hendi
Vantar ekki mikið upp á að hér væri efni í sléttuband...
Ganda vota tætti, tot
táldróg hrotu kvendi
Fjanda otar lendar lot
lífsins skotum hendi
sem mætti þá lesa svona afturábak...
Hendi skotum lífsins lot
lendar otar fjanda
Kvendi hrotu táldróg tot
tætti vota ganda
Takk Skabbi minn.
Gandinn fel jeg Gugguþel
góða tel jeg liggja
hefur skel í skrugguvjel
skrattan sel ef þyggja
Lagfært eftir beztu getu eftir tilsögn meistarans. Fyrirgefið mjer aulaháttinn.
Hjalta viljum undan yljum
oní hyljum þvo um tær
einga skiljum drós með dyljum
dró úr byljum rjett í gær
Vegur langur virðist gangur
vex mitt angur, daprast geð.
Heims við slangur handfarangur
held ég svangur burtu með.
Meðferð sóma mælir róm
mænir hljómur skakkur
Eins og plóma einstakt blóm
eins og gómur blakkur
Blakka sálu bar á bál
brautu hála þræddi
Auma gálu nærði nál
nauma skálu blæddi
Blæddi fingur fagurt singur
flagirðingur "Desemberber"
einn er hringur glatað glingur
glasabingur í September
September í safnið fer
sem úr gleri og blikki
dósir gera uns dag einn er
dauðinn mer þau stykki.
Stykki mikið gerði gott
göfugt spikið seðjar
vega rikið víst á brott
vá malbikið eðjar.
Eðja lekur af hvað tekur
ólmast frekur leirnum í.
Rumpinn skekur rakki sekur
raunir vekur enn á ný.
Ég veit ekki hversu strangar reglur eru hér, en hundinginn var ekki með oddhendu, ég tek þó við keflinu frá Mjása...
Ný er þráðaþrautin háð
það er bráðaraftur
Heljarkláða hef í náð
hún vill fá'ða aftur
p.s. stalst til að líma þennan þráð, vonandi er það í lagi...
Aftur hann á rassinn rann
raunir fann í kinnum
Ei með sann í vísu vann
vefi spann úr minnum
Nú ætla ég að prófa þetta.
Minnir þú á káta kú
kalin hjú og þræla.
Hefur trú og byggir brú
best er nú að æla.
Gjörsamlega innihaldslaust og illa kveðið, en formið er rétt, er það ekki?
rétt er formið
Æla lungu, lifrin þung
linast hungur taugar
Opnast sprung'í aumum pung
aftur gungan laugar
Laugardalsins leti í fleti
ættli geti nokkuð nú
úldið kjet í kafals hreti
einskis meti sætir þú
Riðgaður og lúinn, skírskotun í lands"leik" við Króatahelvítin