Hvað ætli þurfi mörg köst til að ná sex sexum?
Burtséð frá allri tölfræði hvernig væri að kanna málið af eigin raun....
LEIKREGLUR
1. Regla: Kasta skal sex teningum, segi og skrifa sex (6) teningum.
2. Regla: Skrifa skal númer hvað kastið er í bókstöfum (talan má fylgja í sviga ef vill).
3. Regla: Hver þátttakandi má ekki kasta oftar en en einu sinni samfellt (sem þýðir að einhver annar þarf að kasta áður en þú mátt aftur).
4. Regla: Haldið skal áfram samfleytt uns takmarkinu, sex sexum í einu kasti, er náð.
5. Regla: Sá sem hlýtur heiðurinn af því að ná takmarkinu skal hylltur af þátttakendum.
6. Regla: Að takmarki náðu skulu fara fram kosningar þátttakenda um hvort loka skuli þræðinum eða stefnt að nýju takmarki.
Kvartanir, mótmæli og önnur leiðindi sendist veg allrar veraldar.
Hrós, kveðjur og önnur skemmtilegheit sendist í einkapósti til Ísdrottningarinnar.
Takk fyrir og hafið gaman af.
Hmmm... þetta gæti orðið laaaangur leikur. En what the hey:
(1)
Tveir
Fjórir
Bara að benda á að það er svosem óþarfi að telja köstin þar sem 25 innlegg eru á hverri síðu, að lokum væri bara hægt að telja síðurnar. En þetta er svosem alltílagi. Fimm dimmalimm.
Sex
Átta (kikkið er að endast til að skrifa háu tölurnar þegar þar að kemur...)
Tíu
Tólf
(Kæra Ísdrottning má ekki að bæta við einu "t" í formálann þinn)
Er þetta betra minn kæri Riddari? Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið ps. þú gleymdir að kasta...
Fjórtán
Fimmtán (Bara nokkuð skemmtilegar reglur hjá þér Ísdrottning! )
(16)