Loftar út - inn fýkur miði með vísbendingu áritaðri
Þessi mynd er að vissu leyti byggð á mun eldra verki.
Segir mér svo hugur um að þetta muni vera Ó bróðir, hvar hvílið þér?
Hugur þinn er góður ráðgjafi - hann sagði hér þér satt.
Í sumar þá fellur stjarna. Eftirförin hefst.
Kapphlaupið til nornafjalls?
Nei, þetta hlýtur að vera Stardust.
Þarfagreinir greindi þetta rétt að venju. Yfir til þín.
Annars er þetta að mér finnst frábær mynd.
Gefðu okkur heila þinn í tvo klukkutíma og þú verður ekki samur aftur
Þetta er náttúrulega ein af mínum uppáhalds myndum, Ógn og ótti í Las Vegas, eins og RUV myndi kynna hana.
Þarf ég þá ekki að skjóta einhverju að, þó skotist hafi verið fram fyrir mig?
Rómantísk gamanmynd. Með uppvakningum.
Mikið rétt!
Þá er það væntanlega minn túr.
Stórar löggur. Lítill bær. Miðlungs ofbeldi.
Hot Fuzz?
Hann er farinn út að sanna að hann hefur ekkert að sanna.
Sama plánetan ... annar flippandi heimur.