Ég var úti að labba í klukkutíma að skila dóttur minni á leikskólann.
Ég var á Baggalút, er á Baggalút, og ég mun vera á Baggalút í allan dag. Hver veit svo hvað morgundagurinn ber í skauti sér.
Ég var að kaupa blóm handa mínum elskulega, það verður fróðlegt að sjá hvort honum tekst að sýnast ánægður.
Vjer vorum að laumupúkast Ljómar upp.
Ég var að setja kerfið í gang.
Ég var (og ennþá er) á sænsku atvinnuleysisskrifstofunni að hlusta á karlhelvíti tala um atvinnuleit út um allt í evrópusambandinu. Ég nenni ekki að stunda þennann óþverra.
Ég var að klára svakalega törn í vinnunni og get nú með glöðu geði farið að slappa örlítið af.
Hvar er betra að gera það en hérna á Gestapó?
Hugsar sig um í hálfa sekúndu
Nákvæmlega hvergi.
Ég var að klára svakalega törn í vinnunni og get nú með glöðu geði farið að slappa örlítið af.
Hvar er betra að gera það en hérna á Gestapó?
Vjer vorum að eyða nokkrum klst. í að reyna að finna eitthvað betra en að vera hjer á Gestapó en það mistókst Brestur ekki í óstöðvandi grát.

Híhí. Þetta tók hann Þarfagreini ekki nema hálfa sekúndu.
Skottast
Ég var að HNERRA!!!
Ég var að naglalakka og rallíteipa tvær vörtur á ilinni á mér.
Það er alveg ótrúlegt hvað virkar á þessi kvikindi.
Ég var að labba út og síðan inn aftur, fattaði þegar ég var nýkominn út að ég nennti ekki að hitta neinn af þessum svokölluðu vinum mínum eða gera neitt annað úti. Síðan er líka svo kalt (Eða vindur sem getur eyðilagt hárgreiðsluna, þá má ekki. Jafnvel þótt að enginn fái að sjá hana...)