Ég held að við séum bara öll orðin skyggn, og vitum þess vegna hvað Myglar ætlar að skrifa eftir nokkur ár. Þetta hefur ekkert með tímavélar að gera. Starir þegjandi út í loftið
En þó hann segist hafa skrifast þetta í framtíðinni er eigi ljóst hvenær í framtíðinni. Eigi verður t.d. að líkindum unnt að komast að því hvort margumrætt innlegg sje frá árinu 2025 fyrr en klukkan 17:44 19. mars árið 2025. Líklegra er þó að það sje úr fjarlægari framtíð enda árið 2025 einungis eitt ótal margra ártala er enda á 25.
Þetta er það undarlegt að vér erum í mestu vandræðum með að meðtaka allar upplýsingarnar, en reynum þó vort bezta.
En þó hann segist hafa skrifast þetta í framtíðinni er eigi ljóst hvenær í framtíðinni. Eigi verður t.d. að líkindum unnt að komast að því hvort margumrætt innlegg sje frá árinu 2025 fyrr en klukkan 17:44 19. mars árið 2025. Líklegra er þó að það sje úr fjarlægari framtíð enda árið 2025 einungis eitt ótal margra ártala er enda á 25.
En þarf það að vera í framtíðinni? Nú er Myglar langmesta fortíðarljón ritstjórnar og hefur áður komið fram að hann telur sig (og er etv.) vera í fortíðinni. Þannig að ef nútímamyglar er í raun fortíðarmyglar, þá gæti framtíðarmyglar allt eins verið samtíðarmyglar og að framtíðar/samtíðarmyglar hafi sent fortíðarmyglar vélina og hann farið í samtíðina til að heimsækja sjálfan sig.
Ártalið veldur mér líka áhyggjum. Þar sem margt bendir til þess að samtíðarmyglar hafi alltaf verið fortíðarmyglar og að framtíðarmyglar hafi sent fortíðarmyglar vél og fortíðarmyglar farið í framtíð úr fortíð sinni en framtíð fortíðarmyglars gæti hæglega verið fortíð okkar, þar sem hann lifir í samtímanum í fortíðinni. Þar af leiðandi gæti ártalið 25 hreinlega verið tilvísun í 1925 en ekki 2025 eða eitthvað seinna.
Hérna rétt áðan birtist á miðju gólfi ritstjórnarskrifstofunnar fínasta tímavél. Eftir að hafa skoðað hana í nokkrar mínútur gerði ég mér grein fyrir að ég myndi sjálfur hafa sent hana, enda hinir á ritstjórn vart spjallfærir í tímarúmfræði. Ég stillti hana því á þann tíma sem hún hafði birst og sendi hana af stað, en ekki þó fyrr en ég hafði skroppið nokkur ár fram í tímann (og til baka aftur) og sent þennan póst. [Og fyrir þá sem eru að reyna að senda á þennan þráð þá virðist það ekki vera hægt, ég virðist hafa beyglað tímarúmið hérna eitthvað. Sjáum til hvort hægt er að laga þetta...]
Skyldi þetta virka..
Ég tek undir með Hakuchi. Innlegg Myglars kom úr fortíðinni, en, fortíðin er framtíðin þar sem tíminn gengur í hring og framkallar þannig einskonar tímalykkju. Tel ég mig nú hafa fært nægileg rök fyrir máli mínu. Stoltur af uppgötvun sinni
Nei, fortíðin er framtíð fortíðar fortíðar á sama hátt og framtíðin er fortíð framtíðar framtíðar þannig að jafnframt getur framtíð fortíðar fortíðar verið fortíð framtíðar framtíðar sje ákveðnum skilyrðum um tímasetningar fortíðar, fortíðar fortíðar, framtíðar, framtíðar framtíðar og nútíðar fullnægt.
Hmmm...
Hvar er Al þegar maður þarf á honum að halda, já og andskotans lófatölvunni hans líka?
´
Já, ég sakna hans...
Í gær sá ég augljósasta dæmið um notkun tímavéla til þess, í þætti Jay Lenos af öllum stöðum!
Þar söng Billy Idol, sem var ungur maður þegar ég var upp á mitt besta, um miðjan níunda áratuginn. Á þeim tuttugu árum sem liðin eru hef ég látið á sjá, en Billy er nákvæmlega eins og hann var, nú orðinn rúmlega fertugur. Hann er með líkama tvítugs stráks; stæltur, en alls ekki eins og hann eyði tíma í líkamsrækt. Magi og bringa eru eins og á stráklingi sem er enn að vaxa og þroskast og vinnur líkamlega vinnu endrum og sinnum (líkastur malbikunarstrákum, ef ég ætti að líkja honum við einhverja vinnandi karlastétt). Andlitið virðist óbreytt, án þess að merki sjáist um strekkingu eða skurðhnífa.
Ekkert annað en tímavél getur skýrt þetta.
Ég tel það fullvíst að baðkars tímavélinn sem að ég er búinn að vera að smíða í frístundum mínum sé nú hæf til þess að flitja fólk á milli tíma.
Þeir sem vilja frekari upplýsingar um málið hafið sambandi við mig.
Þetta er fáranlega einfalt.
SkemmtilegtLjómar upp
Myglar... hvað er þetta með tímann hjá þér?!?
Jahh, hvur skrambinn!
Hérna rétt áðan birtist á miðju gólfi ritstjórnarskrifstofunnar fínasta tímavél. Eftir að hafa skoðað hana í nokkrar mínútur gerði ég mér grein fyrir að ég myndi sjálfur hafa sent hana, enda hinir á ritstjórn vart spjallfærir í tímarúmfræði. Ég stillti hana því á þann tíma sem hún hafði birst og sendi hana af stað, en ekki þó fyrr en ég hafði skroppið nokkur ár fram í tímann (og til baka aftur) og sent þennan póst. [Og fyrir þá sem eru að reyna að senda á þennan þráð þá virðist það ekki vera hægt, ég virðist hafa beyglað tímarúmið hérna eitthvað. Sjáum til hvort hægt er að laga þetta...]
Ættum við þá ekki að sjá þennan póst fyrst árið 2025? Hvernig get ég vitnað í innlegg sem er skrifað í framtíðinni?
Einnig stendur í tilvitnuninni: „Myglar mælti:“ Ætti ekki að breyta þessu í „Myglar mun mæla:“?