Ég hélt að árið 2025 yrði Baggalútur loksins kominn í þrívídd ...
Já og annað forritunarmál notað heldur en gerist á þessari síðu sem leiðir þá að því að hann geti ekki skrifað á þessa síðu...
Þetta er semsagt ímyndun, Myglar hefur greinilega ekki skrifað þetta innlegg og mun sennilega ekki.
Nema þá kannski að Myglar sé fastur í fortíðinni, í framtíðinni? Þ.e.a.s. notist við gömul tól. Klórar sér í höfðinu
Nema þá kannski að Myglar sé fastur í fortíðinni, í framtíðinni? Þ.e.a.s. notist við gömul tól. Klórar sér í höfðinu
Hefuru ekki séð myndina af honum? Auðvitað er hann með gömul tól
Ég hef orðið var við enn eitt afbrigðilegt við þennan þráð. Í hvert sinn sem ég fer í nýjustu færslur, þá er þessi vefur alltaf neðstur, þrátt fyrir að ekkert hafi verið skrifað á hann í háa herrans tíð. Hvernig stendur á þessu. Skynjar kerfið færslu Myglars alltaf sem þá nýjustu af því hún kemur úr framtíðinni?
Brýtur allar orsakatengingar og skýrir út fyrir hverjum sem vilja heyra hvernig tímavélar virka
Ég hef orðið var við enn eitt afbrigðilegt við þennan þráð. Í hvert sinn sem ég fer í nýjustu færslur, þá er þessi vefur alltaf neðstur, þrátt fyrir að ekkert hafi verið skrifað á hann í háa herrans tíð. Hvernig stendur á þessu. Skynjar kerfið færslu Myglars alltaf sem þá nýjustu af því hún kemur úr framtíðinni?
Þetta er bein afleiðing af tímaflakki Myglars, sem hefur sennilega opnað ormagöng sem liggja beint inn á "Hvað er nýtt" síðuna.
Enter gæti sennilega lokað þeim með smá MySQL göldrum.
Mér segist svo hugur að Myglar einn sé staddur í meintri nútíð, á meðan restin af okkur Gestapóum erum fastir í fortíðini.
Ég hef orðið var við enn eitt afbrigðilegt við þennan þráð. Í hvert sinn sem ég fer í nýjustu færslur, þá er þessi vefur alltaf neðstur, þrátt fyrir að ekkert hafi verið skrifað á hann í háa herrans tíð. Hvernig stendur á þessu. Skynjar kerfið færslu Myglars alltaf sem þá nýjustu af því hún kemur úr framtíðinni?
Það skrítna við það, er að þó það væri nýjasta alltaf og þá nýjasta nýtt, þá er það alltaf elsta nýtt Klórar sér í höfðinu
Auðvitað er það elsta nýtt, ef formerkinu er sleppt.
Nýjasta nýtt er tæplega mínútu gamalt en þetta er -19 ára gamalt. Enter þarf að koma með galdrastafinn sinn á þetta.
Þarf hann þá ekki á tímavél að halda? Klórar sér í höfðinu
Mér segist svo hugur að Myglar einn sé staddur í meintri nútíð, á meðan restin af okkur Gestapóum erum fastir í fortíðini.
Það er merkileg tilgáta. Þjer eigið þá væntanlega við að allir gestir hjer að Myglari undanskildum hafi komist yfir tímavjel ?
Greyið myglar...
Hérna rétt áðan birtist á miðju gólfi ritstjórnarskrifstofunnar fínasta tímavél. Eftir að hafa skoðað hana í nokkrar mínútur gerði ég mér grein fyrir að ég myndi sjálfur hafa sent hana, enda hinir á ritstjórn vart spjallfærir í tímarúmfræði. Ég stillti hana því á þann tíma sem hún hafði birst og sendi hana af stað, en ekki þó fyrr en ég hafði skroppið nokkur ár fram í tímann (og til baka aftur) og sent þennan póst. [Og fyrir þá sem eru að reyna að senda á þennan þráð þá virðist það ekki vera hægt, ég virðist hafa beyglað tímarúmið hérna eitthvað. Sjáum til hvort hægt er að laga þetta...]
Myglar! Heyrirðu í okkur?
Mér segist svo hugur að Myglar einn sé staddur í meintri nútíð, á meðan restin af okkur Gestapóum erum fastir í fortíðini.
Það er merkileg tilgáta. Þjer eigið þá væntanlega við að allir gestir hjer að Myglari undanskildum hafi komist yfir tímavjel ?
Eða þá að tímavjel Myglars hafi seinkað tímanum allstaðar í kringum hann, nema á sjálfum sér... merkileg tímavjel þetta... Klórar sér í höfðinu
Hvað líður tímanum?
Það sniðugasta í dag eru víst tímavélar sem flytja þig klukkutíma inn í framtíðina á aðeins 60 mínútum!Ljómar upp
Var að leita að því sem nýjast væri á Baggalút þegar þetta kom allt í einu í listann:
27/09/05 - 14:12 Fyrstur á Göltinn í kvöld Vladimir Fuckov 27/09/05 - 14:12 NÆTURGÖLTURINN
Greinileg merki um notkun tímavéla!!!