Jæææææææææja, einhver?
Ég er nokkurnveginn handviss um réttmæti svarsins, & geng því útfrá að spurnarrétturinn sé mín megin...
Úr hvaða verki skyldi eftirfarandi línum hafa verið snarað:
Brenndi´ ofan úr bænum,
beint um dyrnar gekk.
Við hurðarbak
fóta- heyrði -tak,
það hljóð mér vakti skrekk.
Metallica?
Er þetta ekki bara átrúnaðargoð mitt, hún Britney Spears?
Ekki Metallica – heldur léttara tónefni.
Ekki Britney – þetta er töluvert eldra.
Ekki HLH – flutt af erlendum aðilum & dálítið nýrra...
Rúmt ár komið og enginn með þetta?
Hef annars ekki hugmynd.........en finnst að ég eigi að þekkja þetta.
Gæti þetta verið Don‘t Go by Atrocity? http://lyrics.filestube.com/song/848f93a08dc5a01203ea,Dont-Go.html
Hvur árinn, Billi? Þar var góð ágiskun.
Gúgúll má örugglega vera hjálpsamur þegar árið er liðið.
Þessi eðalleikur má alls ekki deyja drottni sínum. Núllstillir mælinn
Rétturinn er á lausu. xT
Ég er með fasteign hér í pokanum mínum.
Orðin eru hér eigi birt á frummálinu, eða hvað?
Neibbs. Þyðing er það.
Ég er með fasteign hér í pokanum mínum.
Má ekki klára þetta áður en rétturinn er aftur gefinn laus? Snýr upp á súg fyrir hönd, vinar síns, Bakaradrengsins
Hristir höfuðið yfir því að Kargur, af öllum póum, skuli ekki vera með svarið
"America" með Simon og Garfunkel
Já, ég spurði Lord Google. Tek samt réttinn.
Þegar veður geisa grimm,
grúfir yfir hríðin dimm,
kveiki ég á kertum fimm,
burtflæmi skammdegisskugga.
Bíum, bíum, bambaló. Jónas Árnason, held ég.