Zappa?
Samkvæmt minni alvitru eiginkonu ku þetta vera einhvur Tim Minchin. Téð textabrot er úr laginu Ef þú elskaðir mig í alvörunni.
Eiginkona Kargs á réttinn.
Hananú.
Hlustið þér;
Hún er flugbeitt.
Ef hún fær ei ráðið
mun hún sneiða yður.
Hún er svöl og svört,
kattliðug,
ef þér spilið eigi með
er eigi víst þér lifið af.
Þetta munu vera laumuhommarnir í Mötley Crue með Augnaráð sem drepur.
Bittinú.
Það er gott að vera hér, langt síðan síðast væna
Ég hljóp út á veginn til að finna leið
en einmanaleikinn olli mér tárum
Ég trúi því að ég hafi haft rangt fyrir mér en elskan
nú veit ég að ástin er ekki hlutur
Þú hentir mér út í kuldann og labbaðir í burtu
Mér þykir miður, segðu að þú fyrirgefir
Ég er tómur. Vísbendingu?
O jæja. Þetta er "We" með Volbeat.
Hver á þá réttinn?
Mér er lífsins ómögulegt að muna nokkurn skapaðan hlut,
gersamlega ómögulegt að greina hvort þetta sé raunveruleiki ellegar draumur.
Mér líður innst inni eins og ég þurfi að reka upp skaðræðisöskur
en þögnin þaggar í mér.
Svona nú, þetta er létt.
Jújú – þetta myndi ábyggilega vera hið hugljúfa & hressilega Eitt með drengjunum í Málmfríði...
I can't remember anything
Can't tell if this is true or dream
Deep down inside I feel to scream
This terrible silence stops me
Ég er nokkurnveginn handviss um réttmæti svarsins, & geng því útfrá að spurnarrétturinn sé mín megin...
Úr hvaða verki skyldi eftirfarandi línum hafa verið snarað:
Brenndi´ ofan úr bænum,
beint um dyrnar gekk.
Við hurðarbak
fóta- heyrði -tak,
það hljóð mér vakti skrekk.
Eigi erum vér vissir, en vér viljum endilega halda leiknum á lífi.