Iss, ég er búinn að Googla allt tónleikahald í London í desember og er engu nær. Ég held ég fái mér bara te.
Er ekki bannað að gogla???
Þessi maður semur flest sín lög sjálfur en hefur einnig tekið upp lög annarra listamanna (og samið lög við texta annarra) - m.a. tók hann upp frægt lag eftir Joni Mitchell.
Þegar ég var að alast upp voru á mínu heimili til tvær LP-plötur með þessum ágæta manni enda var hann í miklu dálæti hjá mömmu og pabba - svo eigum við Heittelskaður sitthvorn diskinn.
Þetta er ekki maður sem ég var að finna upp!
Og lagið sem spurt er um er eitt af hans frægustu!
Þetta fer að verða þreytandi....ætla í pásu og kem aftur í kvöld!
Hættir að svindla á Google Joni Mitchell segirðu, ég þekki hana og ég hlýt að þekkja viðkomandi söngvara líka en er samt gjörsamlega lokaður.
Kemur aftur inn eftir að hafa drukkið mikið te og lagt höfuðið í bleyti
Roger Whittaker - I don't believe in If anymore.
ÞAÐ ER RÉTT HERBJÖRN
TIL HAMINGJU
Var þetta nokkuð svo erfitt?
Eða fékkstu þér betri leitarvél?
Til fróðleiks er Joni Mitchell lagið FROM BOTH SIDES NOW og lagið sem Bubbi nauðgaði svo eftirminnilega er STREETS OF LONDON
Whittaker spilaði hér á Broadway í september 2003
Teik itt avei!
Jú, þetta var nokkuð strembið en ég hafði ýmsar klær úti. Roðnar Mig minnti reyndar að Roger væri Ástrali en svo er víst ekki.
Hmm...mér fannst þetta nú bara nokkuð létt, amk miðað við HANNES JÓN og Skólakór Öldutúns sem spurt er um hér að framan - en til hamingju Herbjörn - þetta var flott - og nú get ég þá farið að einbeita mér að náminu!
Takk fyrir, hér kemur þá eitt erindi úr texta á frummálinu:
Did you hear mother --
saying I'm wrong but I know I'm right.
Did you hear father?
Calling my name into the night.
Saying I'll never be what I am now.
Telling me I'll never find what I've already found.
It was they who were wrong,
and for them here's a song.
Hvað heitir lagið og hverjir fluttu?
Hmm...þetta hringir nú einhverjum bjöllum
horfir sauðslega út í loftið og kannast ekki neitt við neitt
Frá ca 1970?
Já, 1969. Ætlaðir þú ekki annars að fara að læra?
Ohhh- þú ert eins og Heittelskaður - bara HUNDLEIÐINLEGUR
er þá farin að læra!
Ohhh- þú ert eins og Heittelskaður - bara HUNDLEIÐINLEGUR
er þá farin að læra!
Æ, æ, viltu samt ekki renna einu sinni yfir námsefnið, hvað svo sem það er og koma svo aftur með lausn á gátunni?
Námsefnið er ca.5000 bls. og prófin búin á föstudag - geturðu ekki geymt þetta þangað til þá?
Námsefnið er ca.5000 bls. og prófin búin á föstudag - geturðu ekki geymt þetta þangað til þá?
Jú, jú svo fremi að ekki komi eitthvert gáfnaljós í millitíðinni með rétt svar. Svo má líka skoða þann möguleika að eyða spurningunni og vekja hana upp aftur eftir viku.
Starir þegjandi út í loftið