Ég kannast ekkert við þetta, en skýt þó á Nikka Helli bara til að segja eitthvað.
Nei - þetta er reyndar einn af mínum uppáhaldssöngvurum - oft mikið vit í textum hjá honum - en telst þó varla jafnalvarlegur og Nikki.
Þið eruð nú meiri ræflarnir! Þarf að fara núna enda í stífum próflestri (svo stífum að ég er búin að hanga hér í allan dag) - kíki á morgun og athuga hvort einhver er að giska af viti...
Lagið sem um ræðir var samið í kringum sjötíu og það er sterkur pólitískur undirtónn í því (óbermið hann heittelskaður er með diskinn í bílnum svo að ég get ekki komið með nákvæmari tímasetningu).
Var að fá það staðfest að umræddur flytjandi samdi bæði lag og texta þess lags sem spurt er um og er þetta eitt af hans þekktari lögum.
Nú bara hljótið þið að geta giskað eitthvað....kíki á ykkur á morgun!
HVERSU HEFT ERUÐ ÞIÐ?!?!?!?!!!
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Er þetta nokkuð Bob Dylan?
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Nebb hvorugur
Viðkomandi er enn á lífi en þó orðinn löggilt gamalmenni.
Fæddur stuttu fyrir seinna stríð....
Leonard Cohen?
Nebb
Þetta er eitt af uppáhaldslögunum okkar Heittelskaðs. Erum við virkilega svona lummó?
Hausinn á mér er svo fullur af kvefi að ég get ekki hugsað. Gefst upp
Lúi rauði labbaði á viltu hliðinni um svipað leiti. er það hann?
Hér kemr þá framhaldið af textanum - í minni snilldarlegu þýðingu:
Og gerir þú það nógu oft og gerir þú það rétt
þú verður hetja um leið
þú bjargar landi þínu
mundu að guð hefur alltaf á réttu að standa....
Lúi rauði labbaði á viltu hliðinni um svipað leiti. er það hann?
Ekki Lúi Rauði, nei...
Snýtir sér hraustlega
Innihald textans minnir mjög á Roger Waters, sem fæddist rétt fyrir seinna stríð en er þó varla orðinn löggilt gamalmenni. Hann hefur komið hingað til laxveiða, en æ... ég kem þessu ekki fyrir mig.
Roger Waters???? kur skyldi það nú vera?
Þú ert samt pínku heitur....
Viðkomandi er enskur en ólst þó upp í Afríku - hann vann m.a. við kennslu í Höfðaborg - þá varð hann semídúx í háskóla - í námi sem maður myndi seint tengja við tónlistarflutning.
Nú segi ég ekki meir - en ef þið þekkið ekki þetta lag þá mæli ég með því að þið tékkið á því - það er alveg frábært!
Roger Waters???? Ertu að grínast? Hann var og er ein aðalsprautan í Pink Floyd, missti föður sinn í seinni heimstyrjöldinni og hefur samið marga ádeilutexta gegn styrjaldarbrölti.
En nú ætla ég að giska: Universal Soldier með Donovan.