Það fer að verða spurning hvort ekki ætti í bili að 'festa' þennan þráð á fyrstu síðu, þetta er lang virkast þráðurinn hjer um þessar mundir...
Grípur til aðgerða
Ég byrjaði sem INFJ, svo varð ég ISFJ, næst ISFP, og ég ætla að prófa aftur um næstu helgi og gá hvort ég verð þá ekki INFP.
En allavega er ég I og F. En það eru merkilega margar spurningar sem er ekkert hægt að svara með já eða nei.
er ekkii eðlilegra að reikna með að þú verðir esfp eins og allir virðast vera þessa dagana?
Þú virðist vera ansi mikið á mörkunum, Regína. Annars mæli ég með langa prófinu, sem ég hlekkjaði á einhvers staðar hér fyrir framan.
Já, ég prófaði það einhvern tíma, var þreytt og vandaði mig ekki og niðurstaðan var að það væri ekkert að marka útkomuna (tekið skýrt fram). En ég held í alvöru að ég sé borderline á þessu S/N og J/P.
Ég byrjaði sem INFJ, svo varð ég ISFJ, næst ISFP, og ég ætla að prófa aftur um næstu helgi og gá hvort ég verð þá ekki INFP.
En allavega er ég I og F. En það eru merkilega margar spurningar sem er ekkert hægt að svara með já eða nei.
er ekkii eðlilegra að reikna með að þú verðir esfp eins og allir virðast vera þessa dagana?
Neibbs, ég er intravört.
Það eru örugglega til 'borderline' tilvik. Vjer höfum komið út bæði sem INTP og INTJ. Það er t.d. atriði í lýsingunni á INTP sem passar sjerlega vel við oss sem ekki er í INTJ. Svo er atriði (og það ekki sjerlega ánægjulegt...) í lýsingunni á INTJ sem passar við oss - það atriði er ekki í lýsingunni á INTP Starir þegjandi út í loftið.
Ég er allavega Extraverted.. svo mikið er víst. Glottir eins og fífl
Það fer nú varla framhjá neinum Glottir eins og fífl. Vjer hljótum síðan að vera hálfgerð introvert 'erkitýpa' Glottir eins og fífl.
Þú sem ert alltaf í símanumKlórar sér í höfðinu
Hvað var Jung annars?
Og þess má geta að ég tók lengra prófið fyrir Þarfa.
Og þess má geta að ég tók lengra prófið fyrir Þarfa.
Ljómar upp
ENFJ eru líka soddan öðlingstýpur víst.
Þakka þér víst fyrir.
En nú hnýgur að spurningu til upphafsmanns þráðar. Hvers lags týpa ert þú?
Þú sem ert alltaf í símanumKlórar sér í höfðinu
Vjer erum að hlera símtöl óvina ríkisins. Því segjum vjer nánast aldrei eitt einasta orð í símann.
Þakka þér víst fyrir.
En nú hnýgur að spurningu til upphafsmanns þráðar. Hvers lags týpa ert þú?
Skrýtin týpa. Mjög skrýtin - en klár.
Þakka þér víst fyrir.
En nú hnýgur að spurningu til upphafsmanns þráðar. Hvers lags týpa ert þú?
Skrýtin týpa. Mjög skrýtin - en klár.
Án efa Þarfi, án efa. Farinn að nálgast Texa-týpuna sem engan veginn má henda reiður á.
er þess virði að taka langa prófið, og ef svo er borgar sig að vera edrú eða fullur við það?
er þess virði að taka langa prófið, og ef svo er borgar sig að vera edrú eða fullur við það?
Var edrú, ef ég tæki það fullur kæmi eflaust önnur skapgerð/persónuleiki út úr því. Þar sem hlutföll mín í vakanda lífi eru edrúmennskunni í hag taldi ég það réttara að þreyta prófið í slíku ástandi. Hugsar sér hver hlutföll eru í dreymanda lífi sínu
Ég kíkti á þetta próf núna rétt áðan, og fékk út sömu niðurstöðu og fyrir 3-4 árum.
ISTP
JÆJA, ég var að ljúka við að taka langa prófið. Samkvæmt því er ég ENFP.
Ég er alveg á mörkunum að vera S og N tölurnar eru 47 og 53.
Þannig ég ætla bara að vera í báðum flokkunum. Ég er búin að lesa báðar lýsingarnar og það er alveg rosalega margt í báðu sem passar við mig. Klórar sér í höfðinu
Tók það. Niðurstaðan?
ELVIS
Raular nokkrar línur úr nýraunsæisballöðunni in the ghetto(ísl. Í Grafarvoginum).
Smá skens.
ENTP.
-og Þarfagreinir sagði gat sé meira að segja til um það áður en ég þreytti prófið.