Man það líka en samt ekki neitt.
Ég man hvað það var asnalegt þegar maður þurfti að fara að nota öryggisbelti í bílum...
Ég man þegar hvalreki þótti góðar fréttir og menn fengu sér allir bita, nú reyna einhverjir nýaldarspekingar að kæra menn fyrir að nota sér hvalrekann.
Ég man þegar ég notaði 'nikkið' Hvalreki á internetinu...
Ég man hvað það var asnalegt þegar maður þurfti að fara að nota öryggisbelti í bílum...
Ég man að það voru ekki einu sinni bílbelti í aftursætinu á eðalvagni foreldra minna þegar allir voru skikkaðir í belti.
Ég man eftir því að það snjóaði fáránlega mikið fyrir vestan, veturinn 1982 - 83.
Ég man þegar ég þurfti ekki að hafa áhyggjur af öryggisáætlunum, viðbragðsáætlunum og áhættumati. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Ég man þegar helvítið hann Útvarpsstjóri átti spólu með The boys. Spólan sú fékk nú aldeilis að snúast. Fær hroll
Ég man þegar 10-11 var matvörubúð, en ekki rándýr túristagildra.
Já já ég skal borga 225 krónur fyrir fokkings mjólkurlíter... Blótar herfilega og rífur hár sitt
Ég man þegar maður þurfti að vera forsjáll og fylla á benzín fyrir stórhátíðir.
Ég man þegar það þurfti að hamstra rjóma og egg fyrir jólabaksturinn.
Ég man þegar kók og appelsín sást einungis á stórhátíðum. Og þá í eins lítra glerflöskum. Sér æskuna renna saman við siðaskiptin
Muninn á afleiðslu og aðleiðslu.
Ég man þá tíð þegar sígarettupakkinn kostaði 500 krónur.
Nú er spurning hvort maður eigi að hætta, en ég hefði endilega viljað hætta á eigin forsendum, ekki verið þvingaður til þess af einhverjum bévítans kontóristum fyrir sunnan sem hafa ekki einu sinni fundið lyktina af neftóbaki.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Ég man þegar pakkinn var á 267 krónur. Sem betur fer er ég nú hættur þessum ósóma.
oss grunar að oss reki minni til þess tíma er téð eining ósómans var seld við verði er jafngilti þágildandi krónum 262
Ég man eftir tóbaksauglýsingum í dagblöðum...