Ég man eftir Chevrolet Nova.
Ég man eftir Madness að auglýsa Colgate Blue Mint tannkrem.
Ég bara man ekki neitt.
Ég man eftir Vaðlaheiðarbeygjunum.
Ég man hvað var í matinn í kvöld.
Ég man eftir Guðfinnu.
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ég man eftir Leikfangamarkaði Sigga Gumm á Akureyri.
Man líka að Sportver var fyrst í pínulitlum skúr þar sem apótekið á Glerártorgi er núna.
Man einnig gamla veginum yfir Öxnadalsheiði!
Ég man að Siggi Gúmm bjó í Helgamagrastræti.
Ég man lítið, ég mundi ekki einu sinni ganga yfir grasið.
Ég man eftir góða Fantanu... þessu gamla.
ójá! gamla góða fantað! Brestur í óstöðvandi grát
En ég man eftir gömu gosflöskunum, plastflöskunum.
Ég man Davíð Stefánsson, frábæran hagyrðing.
Ég man eftir Hljómdeild KEA. Þar keypti ég margan vínilinn.
Ef mig ekki bregður minnið þá var fyrsta platan 1987 með Whitesnake.
Mig rámar líka eitthvað í hljómdeildina!
En ég man eftir Sana, sem nú heitir Viking Brugg (eða hét)
Ég man þegar Bill Wyman spilaði á bassa í The Rolling Stones.