Frábært, gætirðu fundið út fyrir mig talnagildi fyrir eftirfarandi: Gomma, slæðingur, mígrútur, yfrið, kynstur, ógrynni, mergð.
Ég er nefnilega að fara að baka.
Já og hvað er nóg (svona sirka)?
Eru einhverjar almennar reglur rannsóknum þessum til grundvallar, eða er talnagildi hvers orðs óreglulegt fall?
Þetta er afar hressandi innlegg hjá Hlegga.
Starir þegjandi út í loftið og íhugar hvort hann sé búinn að drekka slatta af kaffibollum eða bara kominn rétt yfir slæðing
En er þetta óháð þeim fyrirbærum sem er verið að telja. Myndi maður nota sama talnagildisorðið yfir sandkorn og fíla?
Gomma af sandkornum hlýtur að vera stærri en 17, hins vegar gæti það átt við 17 fíla.klórar sér í höfðinu
Oss finnst nokkuð einkennilegt að nokkuð yfirdrifið sé meira en yfirdrifið Starir þegjandi út í loftið
Hafa einhver orð mínus gildi?
Þess er þörf. Hafa menn einhverjar tillögur?
Lítilræði
Ögn (agnar ögn)
Pínku pons
Þríklofið músarpíkuhár
Eins er spurning um orð yfir óræðar tölur s.s. kvaðratrótina af mínus einum.
Kvaðratrótin af mínus einum er vissulega óræð tala, en hún er einnig tvinntala. Tel ég þarfara verk að taka fyrst fyrir óræðar tölur sem ekki eru tvinntölur, s.s. kvaðratrótina af tveimur. Ræðu tölurnar var búið að ræða um, hins vegar.
Í tengslum við mínuseiningar vil ég benda á algengt kurteisishjal þegar mönnum er þakkað fyrir og þeir svara „það var ekkert“, sumir nota þar jafnvel „það var minna en ekkert“ sem hlýtur að hafa mínusgildi.
Svo er spurning með rúmmálseiningar, sbr. nös á ketti, húsfylli og slíkt.
Fróðlegt. En er þá einfallt að finna hve margi slattar eru í hálfum helling út frá þessu?
Fróðlegt. En er þá einfallt að finna hve margi slattar eru í hálfum helling út frá þessu?
9,071428571
Þá næ ég þessu auðveldlega.
Hlebbi, getum við fengið að sjá plottið í hnitakerfi?
Ég hef átt í vandræðum með soltið og doltið, en gildi þeirr virðast nokkuð á reiki.
Mikið eru þetta þarfar og gagnlegar rannsóknir. Ljómar upp
Hlégestur, þú hefur ekki áhuga á því að koma að vinna fyrir Vísindaráðuneytið?
Hef í kjölfar þessarar umræðu verið að spá í orðinu tómt, samanber glasið er tómt. Er eitthvað tölugildi á því? En galtómt?
Mig vantar nú alltaf einkabílstjóra og handbendi, en ég hafði frekar hugsað mér foxí kúng fú gellu í það starf... Ef þú vinnur þessar rannsóknir í nafni Vísindaráðuneytisins gæti ég greitt þér fyrir þær í brennivíni. Jafnvel í beinhörðum peningum ef því er að skipta...
Hef í kjölfar þessarar umræðu verið að spá í orðinu tómt, samanber glasið er tómt. Er eitthvað tölugildi á því? En galtómt?
Það er auðvitað núll, maður.
Ekki er sama tölugildið á tómt og galtómt?
Þá er ég með. Ekki spurning.
Þá finnum við bara fyrir þig skrifstofu og blýanta til að naga - sjálfsögðu af bestu gerð - finnum handa þér góðan titil...
Hvað er gott... klórar sér í höfðinu Deildarstjóri orðtalnafræða?
Fulltrúi væri skemmtilegur titill. Og ekkert meir. Bara fulltrúi. Þá get ég sett það í símaskrána: Hlégestur Hyltir, fulltrúi.
Réttir Hlebba vasapela Eigum við ekki þá að hafa það fullan fulltrúa, ha? Hlær óstjórnlega Skál!