— GESTAPÓ —
Fangelsi Baggalútíu
» Gestapó   » Baggalútía
     1, 2, 3 ... 24, 25, 26  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dillinger 11/11/04 23:10

Jæja þá hef ég opnað fangelsi og hef skipað sjálfan mig í stöðu Fangelsisstjóra, hann bauv litli er fangavörður.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 12/11/04 09:07

Mundu að fangelsi heyra óhjákvæmilega undir illmennið Blástakk og ert þú því undirmaður hans. Þið starfið í samræmi við launataxta BSBH (Bandalag Starfsmanna Baggalútíska Heimsveldisins. Formaður: Hakuchi).

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
bauv 12/11/04 09:12

Þá eru launin orðin nú smá.

Hvað, hver, hvur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 12/11/04 09:15

Hvaða della er þetta í þér. Fimm gamlar ítalskar lírur á dag, hrökkbrauð og vatnsglas er yfirdrifið nóg fyrir fangavörð.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
bauv 12/11/04 09:16

Vonandi þá íslenskt vatn.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 12/11/04 09:24

Njaaa mjámm...nokkurn veginn.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
bauv 12/11/04 09:26

„Fimm gamlar ítalskar lírur á dag, hrökkbrauð og vatnsglas er yfirdrifið nóg fyrir fangavörð.“
Gott að ssjá ríkisstjórnina ekki eyða öllum Skildingunum.

Hvað, hver, hvur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 12/11/04 09:31

Já, við verðum að spara aurana sem við eyðum í lægri stéttir svo yfirstéttinn hafi eitthvað til hnífs og skeiðar.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Rasspabbi 12/11/04 13:06

‹Lemur bauv með blómapotti í hausinn›

Er laus klefi hjá ykkur?
‹Starir þegjandi út í loftið›

Rasspabbi - Atvinnulaus fyllibytta - Sæmdur heiðursorðu bagglútíska heimsveldisins af Hakuchi - Bruggari í tómstundum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tannsi 12/11/04 13:27

Ég heimta að vera settur inn. Ég er afbrotamaður og ég hef verið iðinn við að brjótast inn á þræði og spjallsvæði á Lútnum. Ég játa hérmeð allt og vil vera settur í einangrun.

(Maður verður líklega að hafa verið í steininum í einhvern tíma til að vera gjaldgengur í Vondukallafélagið)

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 12/11/04 13:30

En þá verðið þér líka að greina mestu laumupúkum Baggalútíu frá því við yfirheyrslur hvernig þér brutust inn.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 12/11/04 13:33

Vladimir Fuckov mælti:

En þá verðið þér líka að greina mestu laumupúkum Baggalútíu frá því við yfirheyrslur hvernig þér brutust inn.

Einmitt...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tannsi 12/11/04 13:48

Ég mun eingöngu kenna öðrum vonduköllum á innbrotstækni mína og eingöngu eftir að ég fæ inngöngu.
En ég lofa samt að koma ekki upp um nein alvöru leyndarmál.
‹Blikkar til þeirra sem skilja›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
bauv 12/11/04 17:35

Sofnar á verðinum.

Hvað, hver, hvur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
bauv 12/11/04 18:35

Gefur úlfinum að borða.

Hvað, hver, hvur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hundinginn 12/11/04 18:38

Er allt að fara úr böndunum? ‹Svolgrar í sig heila flösku af Ákavíti›

Eigandi Kaffi Blúts. • Lifi sannleikurinn!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ég sjálfur 12/11/04 20:52

Segjum sem svo, að einhver hendi borði ofan á mig svo að ég detti aftur fyrir mig og festist undir borðinu. Eftir smá tíma taki ég á það ráð að brjóta borðið af mér til þess að losna. Hef ég þá brotið af mér og verður mér þá hennt inn?

Sönnun lokið.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
bauv 12/11/04 20:54

,,verður mér þá hennt inn?“Nei þér verðið bombað inn.

Hvað, hver, hvur
     1, 2, 3 ... 24, 25, 26  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: