Lítur á dagatalið. Fimmtudagur, föstudagur, heyrðu mig nú!
Afsakið. Vér leggjumst í áhorf eftir að vér höfum komið ungunum í ró.
Bréfberi gengur niður eftir götu einni, og sinnir sinni vinnu. Annar maður kemur að í leigubíl, sér bréfberann og biður ökumannin um að stanza. Farþeginn stígur út úr bílnum og virðist ætla að ganga upp að bréfberanum og heilsa honum, en hættir við og snýr til baka inn í bílinn.
Hvar birtist þetta atriði?
Er þetta í svarthvítri mynd?
Nei, myndin er í lit.
Þekkir bréfberinn þann sem var farþegi? (Reikna með að farþeginn þekki bréfberann.)
Þeir vita hvor um sig hver hinn er, en vér getum eigi sagt, að þeir þekkist.
Kom það farþeganum á óvart, að bréfberinn skyldi vera bréfberi?
Eigi urðum vér varir við það. Þó má vera, að sá í bílnum hafi verið hissa á að sjá manninn, sem hann sá, er hann sá hann.
Var myndin framleidd á þessari öld?
Mér dettur einhverra hluta vegna i hug hann mister Bean. Kemur hann við sögu í þessari mynd?
Hertoginn hefir rétt, en Regína eigi.
Hættir hann við að tala við bréfberann vegna þess að bréfberinn tekur til fótanna?
Var bréfberinn alvöru bréfberi eða maður í gerfi bréfbera?
Deyr einhver í þessari mynd?
Bréfberinn sér eigi hinn, og heldur ótrauður áfram sinni vinnu, ótruflaður. Samkvæmt því, er fram hefir komið, er bréfberinn raunverulegur bréfberi, og að endingu má þess geta, að Hertoginn hefir rétt eina ferðina enn, einhver deyr í myndinni.
Vér teljum, að hér sé þörf á vísbendingu.. hvað segið þér?
Í næsta atriði er bréfberanum fylgt eftir þar sem hann gengur inn í bókabúð og sinnir þar erindum. Til glöggvunar má geta þess, að mestan hluta myndarinnar hefir hann annan starfa.