atriðið er svona: maður fer með konu á listasýningu og sest á fremsta bekk, þar stendur nakinn maður með striga fyrir framan sig, hann tekur trekt og setur í rass, setur málningu í trekktina og notar anus til að sprauta á striga
ég veit sjálfur ekki svarið en ef einhver er 100% viss endilega látið vita og haldið leik áfram
hmmm, eitthvað eftir Hrafn Gunnlauksson væntanlega?
nei ég man hún er erlend og væntanlega á skoplegu nótum
Rámar í þetta. MAn ekki nafnið á myndinni, enda var hún leiðinleg. Julia Stiles lék í henni.
Þetta er úr Good Advice með Charlie Sheen.
takk Vamban, ég er búnað vera að velta þessu fyrir mér núna í viku, var orðinn ansi pirraður
Ekkert að þakka.
En ú hvaða mynd er þetta, Flóðhestur með átsýki, Rostungur heldur framhjá með ketti, kakkalakki býr til sadó masó myndir í kjallaranum. Kanína með kynsjúkdóm, fluga sem lifir á skít og starfar sem paparazzi, fíll sem á barn með hænu og broddgöltur verður ástfanginn af hundstík sem fær ólifjan frá kakkalakkanum og hann er að káfa á henni þegar að broddgölturinn kemur í heimsókn.
Úr hvaða mynd og hver er leikstjórinn?
Neibb þar voru krákur í aðalhlutverki.
Meet the feebles
Peter Jackson
?
Jább.
Í þessari mynd á Elvis við risvandamál að stríða sem kemmst í lag á einum tímapunkti þegar kona ber græðandi kremi á útbrot á penisnum hans
ath! verð frá tölvu þar til seint í kveld svo ekki búast við að ég svari strax
rétt, kannski of auðvelt (hefði ekki átt að segja Elvis) en ágætis mynd þó
Þessi leikur gefur ansi fögur fyrirheit og Hakuchi, haltu okkur við efnið....
Þekkt atriði.
Risastór rumur er búinn að skora á aðalhetjuna frammi fyrir öllum félögum þeirra. Hann vill ná foringjatigninni í glæpaklíku aðalkaratersins. Rumurinn telur sig vera með betra plan en hetjan. Hetjan er treg til að berjast við hann enda er rumurinn tvisvar sinnum stærri en hann. Hnífabardagi verður fyrir valinu. Rumurinn dregur upp dálk og setur sig í stellingar.
Hetjan stöðvar hann um leið og hann gengur að honum og segir að fyrst skuli þeir ræða reglurnar. Rumurinn stórhneykslast og segir engar fjandans reglur vera í hnífabardaga. Í sama mund dúndrar aðalhetjan af öllu afli í klof rumsins. Hann hnígur í kvalakasti. Núnú, segir hetjan, þá er bara best að byrja og biður félaga sinn að telja upp á 3 svo leikarnir geti hafist (rumurinn er frávita af kvölum) og telur sá hinn sami samstundis upp á 3. Aðalhetjan kreppir saman lófana og varpar bylmingshöggi á andstæðinginn sem hnígur flatur á jörðina, steinrotaður.
Sallarólegur labbar hetjan burt og þakkar glaðlega 'stuðning' félaga sinna. Spyr síðan um þessa áætlun rumsins. Þegar hann heyrir hana finnst honum planið vera frábært og ákveður að gera nákvæmlega það sem rumurinn hafði áætlað.