Þá er komið að því alveg flúnkunýr leikur sem mér datt í hug bara si sona.
Leikreglur eru á þá leið að spyrjandi kastar fram staðreynd sem kemur fram í skráningu ákveðins gestapóa. T.a.m undir liðum eins og fræðasvið, eftirlætisdýr, mottó osfrv. Sá er svarar rétt kastar fram nýrri spurningu eins og þekkist í öðrum leikum hér.
Ég hef þá leikinn. Hvaða gestapói skráir þetta kvikindi sem sitt eftirlætisdýr? (Sjá mynd)
Það er hann Vladimir minnir mig...
Er það Frelsishetjan okkar?
p.s. mér líst vel á þennan leik
Hóras var með þetta rétt, eftirlætisdýr Vlads er Pterodactyl eða flugeðla. Þér eruð sérlega vel inni í Gestapófræðum og getið því kallað yður sérfræðing í þeim fræðum og fært þann titil undir fræðasvið í þinni skráningu.
En Hóras spurnarrétturinn er þinn!
Takk Skabbi!
Þessi leikur er semsagt bara við það að deyja ? Og þetta sem er einn sniðugasti leikurinn í langan tíma.
-
Svona reynum áfram.
X er fæddur og uppalinn að Hálsakoti í Háadal. Ungur að árum var X fljótur upp á lag með að gera gys að jafnöldrum sínum og þótti honum þeir tregir. Varð þetta til þess að jafnaldrar X forðuðust hann og óskuðu enskis frekar en að verða ekki fyrir háðslegum skætingi og níðvísum hans er síst varði, varð X fljótt vinalaus með öllu utan prestinn á Síðu sem X heimsótti oft og ræddu þeir jafnan saman heilu dægrin.
Annars þætti mér "Gettu gestaspóann" sniðugra nafn.
Sammála tillögu doktorsins, annars giska ég á að þetta séu æviágrip Herbjarnar.
Glúmur ?
Sammála tillögu doktorsins, annars giska ég á að þetta séu æviágrip Herbjarnar.
Nei, þetta er ekki ég. Gæti verið vísnaskáldið Smali.
Giska á að Vlad hafi rétt firir sér. En þetta lítur út firir að vera fínn leikur.
GETTU GESTASPÓANN! Gefur frá sér vellíðunarstunu
Rétt svar er komið, ekki satt?[/img]
Já réttur spói er Glúmur og ég geri ráð fyrir að það komi í hlut Vlads að varpa fram næstu spóaspurn.
Ég vil svo biðja Hóras afsökunar á að hafa traðkað á spurningarrétti hans.
Ó, Vlad, hvar eruð þér?
Vladimir, ertu nokkuð fastur í hinni nýju alvídd Gestapó...nokkrir leikir að stranda vegna nýfengra vídda...
Jú, þessar breytingar dreifa athygli vorri örlítið.
Hver tilheyrir minnsta minnihlutahópi jarðar ?