Það náttúrulega gengu ekki að vera bara með einn matsölustað hér í Baggalútíu.
Hér verður opnað á morgun 15 Okt. með viðhöfn, ef vínveitingaleyfi fæst.
Matsalurinn tekur einungis 20 manns í sæti og aðeins verður boðið upp á mat af dýrari kanntinum.
Allt er klætt dökkum viði í hólf og gólf og frágangur allur til fyrirmyndar.
Kaffi Blútur á tímabilinu sept. 2006 til maí 2007 er í eftirfarandi þræði:
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=8004
Honum var lokað til að hindra rugling. Önnur tímabil eru í þessum þræði.
- Gæzlan
gengur inn sposkur á svip Heyrðu ef þú segjum hættir við þessa hugmynd, þá skal ég luma hérna til þín þremur bílförmum af kóbalt Baggalút
Ákveður að heyra ekki mútur tilboð Frella og fer og hengir upp skilti fyrir ofa útidyrnar sem á stendur...
Opnar eftir óákveðin tíma!
Skokkar svo yfir á Nærbuxur til að sinna skyldum sínum í dyravörðslunni
Jæja. Ég ættla að leyfa mér að telja niður. Því ég á ekki nema 10 innlegg í að ná upp í það þúsundasta. Þegar þangað er komið verður Kaffi Blútur opnaður með viðhöfn og allir fá frítt að drekka eins og innipúkar vilja. Það verður samt að vera sjálfsafgreiðsala.
Sem sagt...
10
Þúsundasta innleggið mitt!
Allir fá frítt á barnum fram undir morgun. Verði ykkur að góðu!
Tæmir barinn og selur afraksturinn á svörtum markaði (m.a. til hinna ýmsu veitingastaða) til að fjármagna 'exotic matter' tilraunirnar
Lítur inn, sér ekkert nema siflurskottur, eltir þær eins og köttur og étur allar upp til anga með brakhljóðum sem minna á mannátssenu í kvikmynd um uppvakninga
Kemur á staðinn skel þunnur og í vondu skapi
Djöfull er að sjá þetta!
Brennir staðinn til ösku og heimtar tryggingafé