Þessi þráður fjallar um hinn nýja skemmtistað sem ég hef stofnað og nefnist hann Nærbuxur.
Hérna er svo dagskrá kvöldsins:
Hljómsveitin Á túr mun túra í Nærbuxur stundvíslega klukkan 20:00 og mun túr hennar ljúka stundvíslega klukkan 21:30. Þá mun gamalkunn hljómsveit stíga á stokk. Kolrassakrókríðandi mun svo spila í Nærbuxum frá 21:30 til miðnættis.
Þangað til munu næbuxur liggja niðri vegna verktaka því verið er að taka staðinn í gegn.
Kær kveðja rekstrarstjóri á Nærbuxum.
Frelsishetjan.
Þar fórstu nú alveg með það. Á ekki Kolrassa að spila til kl. 3:00 ?
Eða er eitthvað undarlegt á seyði í VIP bakherberginu eftir miðnætti, sem við meigum ekki vita um?
Alveg undrandi
Komdu hérna! talar frá barnum Hvað má bjóða þér?
Þetta var ekki rétta kvöldið til að opna staðinn, Frelli. Hvernig komstu annars inn?
Þú verður gjaldþrota áður en þú kemst af stað. Svo sum ekkert nýtt í þessum geira. Eina svarið er að verða bitur og leiðast út í alkóhólisma til að gleyma skömminni yfir að hafa floppað svona, og að sjáflsögðu kenna utanaðkomandi aðstæðum um árangurinn (sem er reyndar rétt í þessu tilfelli).
Hérna kallinn, drekktu sorgum þínum.
Réttir Frella Ákavítisflösku
Heyrir bara í dúndrandi músík Hvað segiði, mun staðurinn verða gjaldþrota. Hvurslags vitleysa ég er nú drottnari spillingar og fagnaðar hverskonar. Þannig að ég hef ótæmandi birgðir af áfengi og fleiru.
Hvað viljiði?
Heyrðu, ég er með hugmynd að lógói: Dökkbláar Flauelsnærbuxur (mitt gamla nick)
Horfir í kringum sig Hvar í fj... er þessi nýi skemmtistaður eiginlega ?
réttir Vladimir Ákavíti Hættu þessu helv... blóti og fáðu þér sopa. Staðurinn er hér þar sem þú ert.
Ræskir sig og brýnir raustina Ég spurði hvort þú ættir EPLA FANTA??
Afsakið hellir eplafanta í glas einfaldan eða tvöfaldan?
Þetta hefur verið erfið vika...hafð'ann þrefaldan...og ekki spara klakann.
réttir Vladimir Ákavíti Hættu þessu helv... blóti og fáðu þér sopa. Staðurinn er hér þar sem þú ert.
Ha ? Já auðvitað... skál ! Setur bláleitt duft út í drykkinn og sýpur á
Þetta hefur verið erfið vika...hafð'ann þrefaldan...og ekki spara klakann.
Lætur rúmlega þrefaldan réttir Júlíu
Dreypir á drykknum, lygnir aftur augunum og lætur þreytuna líða úr sér. Ég þurftir svo sannarlega á þessu að halda, Frelli. Skál!
Verði þér að góða, hóaðu bara í mig ef þú vilt meira. Hver er næstur??