Sest við borðið andspænis Vladimir. Kveikir í kúbönskum vindli, blæs þykkum reykjarmekki í andlit Forsetans, hóstar örlítið (enda ekki reykingakona). Þá er komið að því, Vladimir. Gjörið svo vel að gefa og látum leikinn hefjast.
Setur í gang afar flókinn og fullkominn lofthreinsibúnað. Setur upp pókersvip og sest
Vér erum óhræddir.
Gefur
Dáist í laumi að pókerfésinu. Íhugar að beita lymskulegum klækjum. Byrjar að skella spilum í borðið, svo ótt að varla festir auga á.
Notar öll trix. Brýtur lítillega upp eitt hornið á þeim spilum er eigi hafa verið sett út svo fljótlegra sé að ná á þeim taki. Losar sig svo í skyndi við fjölmörg spil og skeytir engu þó fingurgómurinn á einum fingrinum skaddist lítillega í látunum
Gengur lengra. Límir saman, svo lítið beri á, nokkur spil, svo gott er að ná á þeim taki um leið og bunkinn á hendi minnkar mjög hratt. Heyrðu, mér heyrist Mosa vera að kalla á þig.
Já ? Sér Mosu hvergi sér til vonbrigða er síðan breytast í eitthvað annað
#$@*~&/}%%%۬^\ !
Fer að rifja upp áhrifaríkari 'svindlaðferðir' en bara að brjóta upp hornin á spilunum
Hefur hugsað upp djöfullegt ráðabrugg. Setur upp sakleysislegan pókersvip
Aftur ?
Brosir blíðlega. Felur bunka af spilum undir borði. Endilega.
Gefur. Er með sérstaklega raðaðan bunka á vel völdum stað
Gefur? Hvað áttu við? Þetta var bara fyrsta umferð, við erum bæði með nokkur spil á hendi ennþá - ég að vísu bara þrjú, en hvað um það. Leggjum borðið.[/s]
Smá misskilningur.
Er í viðbragðsstöðu
Mosa! Hvað ertu að gera hér svona fáklædd?! Fylgist með viðbrögðum Vladimirs, skellir svo 'spilunum' þremur eldsnöggt í borðið HAH!! Vann þig!
Arrrgghhh ! Veltir fyrir sér að fá sér heyrnarhlífar
Setur strax aftur upp pókersvip
Dæsir af ánægju Já, kæri Vlad, það hefur enginn sigrað Drottninguna í kleppara hér á Baggalút.
Veltir fyrir sér hvaða áhrif það hefði á hið baggalútíska samfélag að saka drottningu ríkisins um svindl en hefur á tilfinningunni að slíkt gæti orðið hættulegt einingu ríkisins og yrði þar með vatn á myllu óvina ríkisins. Verður hálf fýlulegur á svipinn
'Svindl' er ljótt orð. Ekki get ég að því gert þó bæði konungur og forseti ríkisins þjáist af einbeitingarskorti. Blístrar sakleysislega
Dæsir af ánægju Já, kæri Vlad, það hefur enginn sigrað Drottninguna í kleppara hér á Baggalút.
Viltu veðja!!! Þú varst bara svo svekkt þegar að ég vann þig seinast að þú lést Sverfil eyða út leiknum.
Treður sér inní leikinnDregur tvö spilBlótar hressilegaDregur þriðja spiliðSetur út spaðafimmuna sem var sennilega alltaf á hendinniÁ fjögur spil eftir