Já kæru vinir nú er komið að nýyrðasamkeppninni. Hún fer fram með svipuðu sniði og önnur keppni hér á svæðinu - einn gefur áður ónefndu fyrirbæri nafn og kallar svo fram annað sem ekkert heitir!
Ég ríð á vaðið en þar sem þetta er fyrsti hlekkurinn í keðjunni gef ég sjálfur lýsingu á því sem nefna ber:
Bandið sem losað er þegar geisladiskur er opnaður:
Rennilos
Maður sem hefur ekki áhuga á keilu?
Keiluófílir
Aðgerðin þegar segin er aska af sígarettum.
Ákvítun
Bilaður blýantur (sumsé oddurinn brotnar í sífellu af)
Yddleysingur
Karlmenn sem eru meira fyrir bíla en konur.
Brytill
Einstaklingur sem æsir sig mikið yfir íþróttaleikjum
Stefnuleysingjar
Hjólreiðamenn sem hjóla úti á miðjum götum.
Gænur
Bjartsýnir Íslendingar fyrir stór íþróttamót
"Óvaskir" menn
Maður sem fær kynferðislega nautn úr því að bora í nefið.
Horvertar
Hljóðið sem kemur þegar startarinn í bílnum virkar ekki.
Snuðrari
Það þegar maður ropar og higgstar samtímis.
að hopa
drasl sem verður eftir í gatara þegar maður gatar pappír
gatamuð
Það að styðja ekki Siv Friðleifsdóttur til áframhaldandi starfa í Framsóknarflokknum en vera samt fylgjandi jafnrétti í stjórnmálum.
Sivjaspell
Maður sem fær kynferðislega örvun af því að snerta selskinn?