hann kallaði allavega málmin vandræðium.
Einmitt hann (ég elska Brussel. Var þar fyrir stuttu og kom við í Tinnaverzlun sem rekið er af dóttur hans Tsjang).
Sulli á réttinn ekki ég.
Hjer eru allir á kolrangri braut.
Nei ég man núna hvað er málið
þetta er bókin sem kolbeinn geymdi viskíið í í bókinni í myrkum mánafjöllum.
Sparkar í Sulla fyrir að hafa afvegaleitt sig.
Og það var rjett.
Grímubúningar? Að þið skulið tala svo um ykkar eigin þjóðbúning?
Hver? Við hvern? Hvar?
Réttir upp hönd Ég veit, ég veit!
Skaftarnir við syldavíska landamæraverði í bókinni um eldflaugastöðina. Skaftarnir höfðu klætt sig upp í gríska þjóðbúninga, sem þeim voru seldir sem syldavískir, til að falla betur inn í fjöldann í Syldavíu.
þetta er nógu rétt nema að þeir sögðu þetta held ég við Baxter.
Sundlaugur, taktu það burtGlottir eins og fífl
Stekkur hæð sína
Þó oft sé slegið á létta strengi í Tinnasögum og ýmsar persónur broslegar þá er Tinni enginn "skrípó" heldur háalvarlegar bókmenntir. Andstætt t.d. Palla og Togga.
Þó er ein mynd undir lok einnar Tinnabókar sem er ekki í neinu samhengi við annars háalvarlegan undirtón þessara bóka og minnir meira á áðurnefnda Palla og Togga, sem voru sköpunarverk sama höfundar.
Í hvaða bók er þetta og hvað sýnir myndin?
er Tobbi sýndur á myndinni?
Öh..., nei
Vandræði Vailu Veinolínu þegar kapteinninn flýgur á hausinn eftir að hafa dottið um brotna tröppu?
varla er ekki einhver að detta niður tröppurnar alla bókina
Að detta niður tröppur, tala ekki um ef Kobeinn kafteinn á í hlut, er ákaflega eðlilegur hlutur. Mér hefur einmitt þótt það vottur um óraunsæi sumra bóka hve sjaldgæft það er að fólk detti niður tröppur.
Nei, myndin sem ég er að leita að er ekki "þessa heims". Höfundur er að sýna okkur nokkuð sem enginn lifandi maður hefur séð að mér vitandi.
P.S. Upprifinn, ég kunni betur við gamla útlitið
Svaðilför í Surtsey þegar skaftarnir detta í sjóinn.
Flugrás 714 til Sydney þar sem Tinni o.fl. eru um borð í fljúgandi diski ?
Nú eða vandræði Vælu þegar rallýkeppnin endar í kaos á hlaðinu hjá Millusetri.