Það getur heldur ekki verið "Skurðgoðið með skarð í eyra" því þar var Kolbeinn heldur ekki kominn til sögunnar.
Er þetta nokkuð "Fangarnir í Sólhofinu"?
Sundlaugur er kominn á sporið en það vantar enn upplýsingar um við hvaða 'tækifæri' Kolbeinn talaði mest um krókódíla.
Þegar Kolbeinn og Tinni (Ásamt leiðsögumanni) voru að sigla á á í frumskógi komu margir krókódílar og réðust á þá og þurftu þeir að nota byssur tiil að fæla þá í burtu. Þegar þeir voru búnir að því og komnir upp á bakka blótaði kafteinninn krókódílonum í sand og ösku.
Var það e.t.v. vegna þess að kapteinninn settist á það sem hann ætlaði vera fallinn trjástofn en reyndist svangur krókódíll og varð það Kolbeini til lífs að Tinni skaut króksa á ögurstundu.
Akkúrat! En svo eftir það gerðist þetta sem ég sagði frá hér fyrir ofan.
Kolbeinn talaði samt minnir mig ekki um krókódíla þá þótt þetta hafi gerst.
Þða var geimsan sem kom mér á spotið svo mér finnst að hún eigi að fá réttin - þ.e. ef spyrjandi viðurkennir svarið sem rétt.
Vladimir virðist ekki ætla koma en þetta er rétt ég skoðaði bókina áðan.
Ég skelli bara einni léttri spurningu á ykkur.
Þegar Tinni kemur til Íslands lendir hann í vandræðum með ákveðið olíufyrirtæki. Hvaða olíufyrirtæki er það, hvar er hann á Íslandi og í hvaða vandræðum lendir hann?
Golden oil, þeir voru að einoka á Íslandi, . Man ekki hitt.
Golden Oil er rétt en ég veit ekki hvort það að þeir hafi verið að einoka á Íslandi sé nóg. Fyrir utan hitt meina ég.
Golden Oil og var þetta á Akureyri. Golden Oil hafði einkarjett á allri olíusölu á Íslandi.
Fullnægjandi svar við upphaflegri spurningu vorri var eigi komið fram þannig að vjer endurtökum hana. Kolbeinn talaði ekki mest um krókódíla þegar atvikin sem hjer hafa verið nefnd tengd krókódílum gerðust heldur nokkru síðar. Í tengslum við hvaða atburð(i) var það ?
Til viðbótar því er vjer nefndum upphaflega í spurningunni nefnir hann líka krúnurakaða krókódíla, kringlótta krókódíla og leikbrúðu-krókódíla.
Þá hefur Kolbeinn talað mest um krókódíla þegar hann var að fara yfir á eða foss á reipi, en það gekk hálf brösulega hjá honum?
Annars er hitt rétt hjá Vladimir.
Hann nefnir vissulega krókódíla í tengslum við þetta atvik en þó miklu meira skömmu síðar...
En vegna þess að hann nefndi líka krókódíla þarna má líta svo á að þetta sje að mestu rjett.
Hann talar líka um krókódíla í hellinum á bakvið fossinn. Er það það sem þú ert að tala um?
Annars á Vladimir réttinn.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að hjer kom loksins svarið sem vjer vorum að fiska eftir. Lítum vjer svo á að Geimveran eigi núna spurnarrjettinn.
Hvað heitir prófessorinn sem er sérfræðingur í örhljóðum?
Toppólínó