Hvernig stóð á því að Kolbeinn kafteinn vildi endilega súpa á vatni í stórum stíl í lok Fanganna í Sólhofinu ?
Mig minnir að hann hafi smakkað einhvern rótsterkan kryddávöxt.
Offari bullar og ruglar saman bókum eins og asni.
Kolbeinn vildi spíta á lamadýr og þar með hefna fyrir spítingar þeirra á hann fyrr í bókinni.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að svar Upprifins er rjett.
Hversvegna voru þeir félagar á leiðinni til Sydney?
Á flugsýningu.
Hversvegna þeir. er málið
Var ekki ástæðan sú að Kolbeinn var svo góðhjartaður að gefa Carreidas pening í hattinn sinn, því honum fannst hann líta út eins og róni? Er þetta kannske ekki það sem verið er að fiska eftir?
Já, við skulum ekkert vera að breyta ótitlinum. Það er augljóst að Hakuchi hefur ekki verið hinn raunverulegi málshefjandi...
Getur verið, önd. en þegar ég eyðilagði þráðinn með útstrikunum OG breytti nafni hans var það hluti af samfelldu listaverki. Þið ófriðarseggir sem stundið hér friðargæslu eigið ekkert með að krota á mína fögru list.
Annars er svarið við spurningunni sú að þeim var boðið sem heiðursgestum því að þeir voru fyrstu mennirnir til að stíga fæti á tunglið, góðum áratug á undan Njáli handsterka.
Og enn sannar hlewagastiR sína afburðaþekkingu á ævintýrum Tinna.
Ég er með rosalega góða spurningu, en ég hef ekkert svar.
Nokkur stöðuvötn koma við sögu í Tinna-bókunum og koma nöfn þeirra gjarna fram í textahlutanum. Hvaða stöðuvatn er oftast nefnt á nafn? (Vísbending, stöðuvatnið er raunverulegt, ekki uppdiktað.)
Ég ætla að skjóta á Genfarvatn.
Kom meðal annars fram í bókinni um Leynivopnið.
Það getur varla verið annað en Loch Lomond.
Getur verið, önd. en þegar ég eyðilagði þráðinn með útstrikunum OG breytti nafni hans var það hluti af samfelldu listaverki. Þið ófriðarseggir sem stundið hér friðargæslu eigið ekkert með að krota á mína fögru list.
Annars er svarið við spurningunni sú að þeim var boðið sem heiðursgestum því að þeir voru fyrstu mennirnir til að stíga fæti á tunglið, góðum áratug á undan Njáli handsterka.
Hefðirðu nú bara sagt það strax elsku snúllubossinn minn, hefði ég auðvitað aldrei breytt ótitlinum...
Vor ástkæri söngvari Roxy Music er með þetta rétt.
Dæsir hálf-svekktur yfir að öndin hafi orðið vð tilmælunum - þar fór tækifæri til að agnúast út í friðargæsluna a.m.k. fram að jólum.
Vor ástkæri söngvari Roxy Music er með þetta rétt.
Dæsir hálf-svekktur yfir að öndin hafi orðið vð tilmælunum - þar fór tækifæri til að agnúast út í friðargæsluna a.m.k. fram að jólum.
Hlær oní herðar sér (eru endur annars með herðar?)