Tel að það gæti verið forvitnilegt vita í hvað Bagglýtingjar eru að glugga.
Ég er um þessar mundir að endurnýja gömul kynni við "Vopnin kvödd"
Þá má vel hugsa sér að þræðarar láti nokkur vel valin orð falla um lesninguna.
Var að ljúka við Neverwhere Niel Gaimans. Afar skemmtileg bók.
Nú les ég Foreign Affairs tímaritið. Blaðið er útblásið af sjálfhverfum uppskafningum sem nota stór orð til að lýsa einhverju sem mig grunar að þeir skilji ekki sjálfir en samt, stundum er eitthvað sæmilega athyglisvert í þessum ræfli.
Næst á dagskrá er Hundrað ára einsemd eftir Lorca.
Síðast las ég Red Dragon. Hálf-kjánaleg. Man ekki höfundinn.
Nú er þaðCall of Cthulhu and other weird stories eftir H. P. Lovecraft.
Smásagnabálkur, sumar sögurnar eru ekkert annað en drulla, aðrar hreint gull.
Mæli með sögunni "The outsider", en ef einhver hérna les téða bók má sá hinn sami alveg sleppa "Herbert West - Re-animator". Hún er í einu orð sagt slöpp.
Bókin er á heildina litið góð, og ætla ég mér að kynna mér höfundinn betur. Þanig að The Dunwitch horror eða At the Mountains of Madness er næst á dagskrá.
Ég er að ljúka við Stupid White Men eftir Michael Moore. Kannski ég riti gagnrýni hér síðar.
Var að klára "The man who fell to earth" skemmtileg pæling. Er að spá í að ná mér í spóluna við tækifæri ti að sjá meistara Bowie túlka geimveruna Thomas (hét hann ekki líka Thomas sem ritað Red Dragon.....). Veit ekki alveg hvað veldur en ég virðist sækja í bækur sem ég las fyrir langa löngu. Ætli það verði ekki "I robot" eftir Asimow næst, hvur veit.
Síðasta bók sem ég gluggaði í var "The Book of Useless Information". Bráðskemmtileg lesning og ætti að vera til á hverju heimili.
Í augnablikinu er ég að lesa "Bridge of Birds" eftir Barry Hughart.
Íslendingasögurnar (Er í Njálu), Stupid White Men, Perlur Laxness og Da Vinci lykilinn eru á náttborðinu.
Vér höfum nýlokið við Fursta Machiavellis er vér lítum á sem skyldulesningu æðstu valdhafa í Baggalútíu. Reyndar sáum vér hina furðulegustu hluti í að einhverju leyti nýju ljósi eftir lesturinn, m.a. sum af vandræðum Bandaríkjamanna í Írak.
Að öðru leyti er margt á borði voru (því gengur margt af því hægt), frá lágmenningarlegu léttmeti yfir í öllu menningarlegra efni og þaðan yfir í mjög nördalegt efni (svo vægt sé til orða tekið). Aðallestrarefnið er sem stendur Stormur eftir Einar Kárason.
Veltir fyrir sér hvort gáfulegt væri að einhverjir gestir skrifuðu bókagagnrýni...
Furstinn er nauðsyn fyrir Baggalútíustjórnendur.
Ennfremur:
The Art of War eftir Sun tzu
The Book of five rings eftir Miyamoto Musashi.
Með þessa þrenningu að vopni er hægt að leggja undir sig jörðina án þess að lyfta litlafingri
Hagfræði í hnotskurn, og bókina Ertu viss?
Vitlausa síðu í Acta Sanctorum --- %$#/#&"%!* prentvillur hjá öðrum fræðimönnum!
The Resturant at the End of the Galaxy er í lesningu hjá Goggnum.
The Resturant at the End of the Galaxy er í lesningu hjá Goggnum.
Það prýðileg lesning eins og Douglas Adams allur er.
The Resturant at the End of the Galaxy er í lesningu hjá Goggnum.
Það prýðileg lesning eins og Douglas Adams allur er.
Satt er það, hr. Nafni.
Ég er að lesa....
lúðraþytur
Anders And
Ég er nú að lesa Hjemmet. Það er gott blað.