Þetta vil ég gera á Þorláksmessu
og þykir alltaf jafngaman að þessu
að stinga tólg úr fötu
og skófla í mig skötu
það er sko meira virði en einnar messu.
Hún pikkaði og plokkaði' upp túlí-
pana í skapi mjög fúlu' í.
Því úti var heitt
og hún engu gat breytt;
hún hélt upp á jólin í júlí.
„...í skapi mjög fúlu í...“ er hliðstætt við hið fornfræga „...hér á landi á...“
betra væri:
Hún pikkaði og plokkaði' upp túlí-
pana, var skapi mjög fúlu' í.
Þakka ábendinguna - vissulega er þetta hárrétt og ég má skammast mín. Kannski ég breyti þessu í þetta:
Hún pikkaði og plokkaði' upp túlí-
panana skapi mjög fúlu' í.
Því úti var heitt
og hún engu gat breytt;
hún hélt upp á jólin í júlí.
Guðrún var allnokkuð gælin
við gæjann sem vistaði fælinn
hún nálgaðist spé
fór niður á hné
og holgóma nagaði hælinn.
Guðrún var allnokkuð gælin
við gæjann sem vistaði fælinn
hún nálgaðist spé
fór niður á hné
og holgóma nagaði hælinn.
Hún Margrét var kornið sem mælinn
margsinnis fyllti, er rælinn
oftsinnis sté.
Svo eignaðist fé;
Menn handarbök naga, og hælinn.
Guðrún var allnokkuð gælin
við gæjann sem vistaði fælinn
hún nálgaðist spé
fór niður á hné
og holgóma nagaði hælinn.
Hún Margrét var kornið sem mælinn
margsinnis fyllti, er rælinn
oftsinnis sté.
Svo eignaðist fé;
Menn handarbök naga, og hælinn.
Hún Laufey mörg lagðist í bælin,
var laghent og aldrei neitt fælin.
Ef gerði hún hlé
menn gáf'enni fé
og gátu svo farið að dæl'inn.
Geirlaug víst oftast að Geir laug
og grófara, því sem hún meir laug,
Hann öllu samt trúði
uns ösku hún spúði
og ómálga varð þá hún Geirlaug.
Menn valda- oft við reyna -töflin
í von um að markaðs- fá -öflin.
Þar uppsprettan á
að vera frá
dópsala nokkrum í Dublin.
Í Dublin menn oftlega drabba
og dufla er götur þeir labba
í krá eftir krá
sem koma þeir á
í konum þeir suða og kvabba.
Ég mæni á flekkóttann flóann
og fölgulan ískalda móann.
Samt hækkar hratt sól
og senn fer á ról
söngglaða fallega lóan.
Heimskan er komin í hring
og herjar á hvern stjórnspeking.
Ég gæti best trúað
að glapráð sé nú að
gangsetja stjórnlagaþing.
Um alþingiskosningar allt
umhverfist nú, það er svalt.
En stefnirðu í stjórn
þarftu stuðning – og fórn
að færa. Mitt atkvæði er falt.
Falt er á Fróni allt klabbið
sem fúnar nú ofan í slabbið.
Og þið skulið borga,
í blöðum þeir orga,
þó að þið kvabbið og kvabbið.
Gunna var gömul og krumpin
en göndulinn þáði í rumpinn
syndug og sæl
í saurugum ræl
Hún orgað'í takt við prumpin
Nafni var nefndur að Bóli
nýlega kominn af róli
pissandi á prestinn
pumpað ann hestinn
Kyrktur með handbæru tóli
Jafnvel þótt lýðveldið logi
og lífsins sé slitnaður bogi
býr lífsneistinn í
henni Lenocie
og laginu úr Kópavogi.
Það Kópavogs konu er sök,
sem kenndi mér endaþarmsmök
og hnefana skók
með hnúa í brók,
að hringtuðran á mér er slök.
Þetta lætur maður út úr sér
Það Kópavogs konu er sök,
sem kenndi mér endaþarmsmök
og hnefana skók
með hnúa í brók,
að hringtuðran á mér er slök.
Þetta lætur maður út úr sér
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Gúrkutal gjarnan er munnmæli
sú glennir sig bláleit úr ljóðmæli
um harðlífi og harðmæli
það helvítis matvæli
semur um sex ára rafmæli