Stelur réttinum
Á hversu marga mismunandi vegu er hægt að raða 8 hrókum á 64 reita taflborð án þess að þeir geti rekist hvor á annan?
Ég banna Geimverunni að svara.
Átta hrókum? Hrókar fara alltaf í beina línu. Það dæmi hefur miklu fleiri möguleika en dæmið gamalkunna með 8 drottningum.
Drottningadæmið er hægt að raða á tvo vegu og margfalda síðan með snúningi á taflborðinu frá hvítum reitum í svarta reiti.
40 þúsund talan er fáranlega há. Prófið bara sjálf.
Stelur réttinum
Á hversu marga mismunandi vegu er hægt að raða 8 hrókum á 64 reita taflborð án þess að þeir geti rekist hvor á annan?
Svarið við gátunni er tómamengi. Átta hrókar geta ekki rekist hvor á annan. Bara hver á annan.

Snjallræði! Klappar hástöfum
Jæja, var hrókaumræðunni ekki lokið? Ekki það að þetta sé ekki frekar léttvægt innskot ...
Það væri gaman ef einhver gæti sagt mér hvaða listi þetta er:
2, 3, 5, 7, 11, 101, 131, 151, 181, 191, 313, 353, 373, 383, 727, 757, 787, 797, 919, 929, 10301, 10501, 10601, 11311, 11411, 12421, 12721, 12821, 13331, 13831, 13931, 14341, 14741, 15451, 15551, 16061, 16361, 16561, 16661, 17471, 17971, 18181, ...
Hið augljósa er, að það sé handahófskenndur listi samhverfra talna, en eins augljóslega er það eigi rétta svarið.
Samhverfar prímtölur?
Væni Grétar kom með það sem ég var að bögglast með...

Jamm, þetta er rétt hjá honum. Nánar til tekið eru þetta fyrstu 42 slíku tölurnar í réttri röð, en ég geri fastlega ráð fyrir því að það sé frekar augljóst.
Ég á víst að gera.
Skákdæmi:Hvítur er með biskup á a7, kóng á c2 og peð á h6. Svartur er með kóng á h4, biskup á a1, og peð á e5.
Hvítur á leik. Hann á leik sem vinnur honum skákina. Hver er sá leikur?
Ef einhver er með forrit eða eitthvað til að koma með mynd af þessari stöðu má hann gera það.
( Helst þarf að rökstyðja af hverju þessi tiltekni leikur vinnur hvíti skákina.)
Skákdæmi:Hvítur er með biskup á a7, kóng á c2 og peð á h6. Svartur er með kóng á h4, biskup á a1, og peð á e5.
Hvítur á leik. Hann á leik sem vinnur honum skákina. Hver er sá leikur?
Fyrst er að nefna, að ekki má hvítur missa peðs síns, því að þar liggur hinn endanlegi sigur hans. Þá er að nefna, að ekki getur hvítur otað biskup sínum sér til gagns, því að biskup svarts myndi ekki finna í því mikla fyrirstöðu (... x Bd4). Ráðlegast væri þá fyrir hvít að halda tempoinu og færa kóng sinn fram á reit d3. Þá, ef svartur færir peð sitt fram, til þess að opna biskup sínum leið milli horna (og að h8, þar sem peð hvíts myndi í fyllingu tímans verða að drottningu), og gera hvíta kónginum þar með skák, - þá einfaldlega drepur kóngurinn það.
Þar með yrði svartur peðlaus, og hvítum yrði ekki erfitt að gera skráveifur og verja með því peð sitt, enda eru báðir biskupanna svartgengir.
Og svartur gefst upp, saddur lífdaga!

Geri hvítur þetta þá getur peð hans ekki orðið að drottningu, biskup svarts er alltaf með það í hornreitnum, og þá er leikurinn jafntefli. Hann á að vinna.
Ef vjer munum rjett er þetta mjög frægt skákdæmi...
Hvítur á leik. Hann á leik sem vinnur honum skákina. Hver er sá leikur?
Ofsóknir hvíta mannsins halda áfram! Ég er samt óttalegur bleiknefji.

Þú ert bara hvítt peð, sennilega hrókspeð. Teyndu ekki að villa um fyrir mönnum með þessu hattprjáli.