Nú ætla ég að starta nýjum leik. Ég byrja á því að henda fram einhverja setningu héðan af Gestapó og svo eigið þið að giska hver sagði þau orð. Sá sem giskar rétt fær að koma með næstu setningu.
Hver sagði eftirfarandi setningu?
Komstu og fórstu eða fórstu bara eða fórstu og komstu eða fórstu og þurftir að fara ? Eða hvað ?
Hugmyndin er fengin frá þræði Mikils hákonar...sem staddur er á Þýðingar speki og orðsnilld
Vamban?
Eru takmörk fyrir svarmöguleikum í einni færslu?
Minnir oss á Albert Yggarz - var þetta hann ?
Nú bölvum vér í hljóði því af einhverjum ástæðum eru innlegg vor trúlega oftast fremur auðþekkjanleg
Ekki man ég eftir að hafa sagt þetta en mig grunar að Mikill Hákon hafi umlað þessu út úr sér.
Ég dreg fyrri ágískun mína til baka og segi Hakuchi.
Nei, enginn hér að ofan hefur rétt fyrir sér...vísbending?
Hann hefur reyndar ekki mætt á lútinn í 3-4 mánuði (skömmin), en var þokkalega virkur þar áður...góð ástæða fyrir þá sem hafa verið stutt hérna að kynna sér gömul innlegg...hahaha
hér er setning frá honum:
Það er algjör réttur hins fullkomna ríkis að fylgjast með og hafa áhrif á skoðanir þegna sinna.
Ég ætlaði að finna út úr þessu á hávísindalegann hátt en nennti því svo ekki og giska á Ruglubulla.
Þá er þetta faðir minn heitinn, hann Blástakkur!
Ekki er það Ruglubulli og ekki Blástakkur (enda hefur hann nú ekki verið svo lengi í burtu)... geri þetta auðvelt, hann er á topp 50 listanum...
Ég veit þetta, þó að það tók mig heillangan tíma a fatta þetta. Með smá hjálp frá heimavarnarliðinu. En ég vil ekki segja það, ég er neðar en hann staddur í heimavarnarliðinu. Þetta er trommuslög í þónokkurn tíma LIMBRI!!!!!
Já Goggurinn minn (vel af sér vikið, þetta tók þig bara 25 mínútur-5 mínútur sem fóru í klósettferðir og bjórþamb = 20 mín)...þú átt rétt á næstu spurningu...veldu vel...
Jæja já, þetta tók sinn tíma. En já, tilvitnunin:
„Sannleikurinn sem knýr ofurmennin til dáða.“
Hver sagði þetta? Ekki búast við svari fyrren um kl. 14:00.