Jæja Tina. Koma svo.
Jæja, þá skal ég bara...
Hver samdi og flutti lagið Jeux Sans Frontieres og hvaða söngkona söng með í laginu?
Þetta er eitthvað svo Stanglers legt svo það er mitt gisk.
Peter Gabríel söng og samdi lagið Jeux. Ekki veit ég hver söng með honum í viðlaginu, Kate Bush kannske.
Jah... Hakuchi var með rétt svar og ég var búinn að steingleyma þessu... takt þú bara upp þráðinn...
Frekar er þetta nú dauflegur þráður.
Er þá ekki um að gera að endurvekja hann?
stelur réttinum
Máni Svavarsson er hvað þekktastur fyrir að semja tónlinsta fyrir Latabæ, ásamt fleiri (mismerkilegum) popptónsmíðum. Hins vegar má telja báða foreldra hans merkileg nöfn í tónlistarheiminum - hver eru nöfn þeirra?
Rétt. Þetta var nú bara svona til að hita upp.
Jörð kallar hvæsidillumeistara. Yðar er óskað.
Kemur inn á handahlaupum
Gerum þetta nokkuð svínslegt.
Hvað hét fyrsta smáskífa norðlensku hljómsveitarinnar, "Stubbi og Stuðkarlarnir" ?
Kemur inn á handahlaupum
Gerum þetta nokkuð svínslegt.
Hvað hét fyrsta smáskífa norðlensku hljómsveitarinnar, "Stubbi og Stuðkarlarnir" ?
Enginn ?
Enginn ?
Tja, ég er ákaflega ófróður um norðlenzkar hljómsveitir, jafnvel af Sunnlendingi að vera. Þessar hljómsveitir þekki ég: Forgotten Lores og Helga og hljóðfæraleikarana, sem eru frá Akureyri, og svo minnir mig að Soðin fiðla hafi komið frá Húsavík. Fleiri þekki ég ekki. En í hverju eru svínslegheitin fólgin? Og hvað er málið með gæsalappirnar um "Stubba og Stuðkarlarna"?
Ert þú með spurningaréttinn eða ég ?
Mig langaði að gera gæsalappir og því gerði ég gæsalappir.
Hendir notuðum gæsalöppum í Blöndung
Eftir nokkra gúgglun (sem ég tel réttlætanlega eftir 9 mánaða dvala) varpa ég fram tilgátunni "Með kveðju til þín". Gæti það nokkuð verið rétt, Hvæsi eða ertu búinn að gleyma því?
Stubba gamla gleymi ég seint.
Þetta er hárrétt svar.
Til hamingju með réttinn.